Reykjavíkurdætur hafa heldur betur vakið athygli en þær slógu fréttakonu nú á dögunum, í hið minnsta í gamni líkt og má sjá í myndbandin hér neðst í fréttinni.
Er þar um að ræða innslag í Júróvisjón þáttum Fréttablaðsins. Þátturinn ber heitið Júró með Nínu og Ingunni en systurnar brugðust ókvæða við spurðar út í tapið í Söngvakeppninni.
Þær slógu líka á orðróma um aðild að Íslandsbankaútboðinu og höfnuðu öllum fullyrðingum um meint áform þeirra um að gera áhlaup á sviðið í Torino.
Þuríður Blær Jóhannsdóttir, einnig þekkt sem Blær, heyrðist hringja í Daða Frey áður en þær flúðu vettvang í þessu stórskemmtilega innslagi sem horfa má á hér.