Reykjavíkurborg sögð hafa fjarlægt færsluna vegna neikvæðra viðbragða

Færsla sem Reykjavíkurborg setti inn í íbúahóp Vesturbæinga á Facebook í dag, þar sem fjallað var um ágæti Hafnartorgs, virðist hafa verið fjarlægð úr hópnum.

Hringbraut greindi frá því í dag að Reykjavíkurborg hefði deilt færslu í nokkrar íbúagrúppur þar sem birtar eru myndir af Hafnartorgi – fyrir og eftir breytingar: „Hér höfum við Hafnartorg fyrir og eftir. Hvað finnst þér?,“ stóð í færslunni.

Þegar skipulagsmál eru annars vegar má búast við því að skoðanir séu skiptar, en í umræðum í Vesturbæjargrúppunni voru töluvert margir á því að borgin hefði gert mistök með núverandi skipulagi Hafnartorgs.

„Það hefði að mínu mati gert þetta mun huggu­legra og meira “ís­lenskt” torg. Núna finnst mér þetta afar kulda­legt og al­gjört rok­rass­gat en svo aðal­ega væri svo gaman að hafa meira líf og meiri at­vinnu­mögu­leika,“ sagði til dæmis í einni athugasemdinni.

Í nýrri færslu í íbúahópi Vesturbæinga er bent á að færsla borgarinnar sé nú horfin úr grúppunni, að sögn vegna neikvæðrar umræðu.

„Of neikvæð umræða fyrir Reykjavíkurborg sýnist mér þegar reynt er að bera saman jú ljótt bílastæði og hörmungina sem litla Berlín er orðin - pósturinn tekinn út þegar komin voru yfir 70 neikvæð komment. Flest kommentin bentu á hvílíkt skipulagsslys þetta er orðið með vindgöngum í höfuðáttum sem skyggðu á alla sýn til hafs, grár og kumbaldalegur arkitektúr sem gerði ekkert fyrir mannlífið og mannsandann þarna. En það er greinilega ekki sú umræða sem borgin vill fá og því ritskoðar hún eigin pósta,“ segir í nýjasta innlegginu en með því fylgja nokkur skjáskot af umræðunum undir færslunni sem hvarf.