Reykja­víkur­borg ögrar Rússum og breyta nafni torgsins við Tún­götu

Torgið á horni Garða­strætis og Tún­götu verður fram­vegis kennt við Kænu­garð/Kýiv, höfuð­borg Úkraínu. Skipu­lags- og sam­göngu­ráð Reykja­víkur­borgar sam­þykkti ein­róma á fundi sínum í morgun að torgið fái heitið Kænu­garður en undir­heiti verði Kýiv-torg. Ensk þýðing torgsins verður Kyiv Square og sam­bæri­leg þýðing verður notuð á öðrum tungu­málum. Þetta kemur fram í frétta­til­kynningu frá Reykja­víkur­borg

Mikill vilji er til að sýna sam­stöðu með úkraínsku þjóðinni, úkraínska ríkinu og úkraínskum borgum í kjöl­far inn­rásar Rúss­lands í Úkraínu, segir í greinar­gerð með til­lögunni.

„Hér er Reykja­vík að senda skýr skila­boð um stuðning við úkraínsku þjóðina og minna um leið á æva­forna tengingu milli Ís­lands og Kænu­garðs. Stað­setningin er við­eig­andi við horn Garða­strætis og Tún­götu en við þær götur eru ein­mitt skrif­stofur og sendi­ráð er­lendra ríkja,“ segir Ey­þór Lax­dal Arnalds borgar­full­trúi.

Torgið er um leið garður

Fram hafa komið hug­myndir um að endur­nefna götur á borð við Garða­stræti eða Tún­götu og kenna þær við Úkraínu eða höfuð­borgina Kænu­garð í þeim til­gangi. „Eftir skoðun þykir rétt að leggja til að torgið á norð­austur­horni beggja þessara gatna, Garða­strætis og Tún­götu, verði kennt við Kænu­garð eða Kýiv. Nafnið „Kænu­garður“ vísar sögu­legs nafns borgarinnar á ís­lensku og undir­strikar yfir ár­þúsunda langa sögu hennar. Þá skapar heitið á­kveðin hug­hrif þar sem að torgið er um leið garður,“ segir í greinar­gerðinni.

Hlustað á óskir um að nota heitið Kýiv


Í henni kemur einnig fram að hlustað hafi verið á óskir um að að úkraínska nafnið Kýiv verði notað. Eðli­legt þyki að koma til móts við þau sjónar­mið en Kýiv-nafnið sé þekkt al­þjóð­lega. Því var lagt til að notast yrði við tvö­falt heiti Kænu­garður/Kýiv-torg á ís­lensku en Kyiv Square og sam­bæri­leg heiti á öðrum tungu­málum.

Til­lögunni hefur verið vísað til borgar­ráðs og enn fremur hefur um­hverfis- og skipu­lags­sviði verið falið að hefja undir­búning að gerð skiltis fyrir torgið.