„ATHUGIÐ. Í ljósi jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga að undanförnu og að Veðurstofa Íslands segir að líkur séu á skjálfta um eða yfir 6 á stærð á Reykjanesi sem muni hafa áhrif á höfuðborgarsvæðinu hvetjum við íbúa til þess að huga að innanstokksmunum og frágangi innanhúss.“
Þetta kemur fram í aðvörun sem birt er á Facebook-síðu Reykjavíkurborgar. Þar er borgarbúum bent á að festa hillur og skápa vel við veggi sem og aðra hluti sem gætu mögulega losnað. Þetta rímar við það sem Kristín Jónsdóttir, hópstjóri náttúruvárvöktunar á Veðurstofu Íslands sagði í samtali við Fréttablaðið síðastliðinn sunnudag.
Þar kom fram að líkur á stórum skjálfta á Reykjanesskaganum á næstunni hafi aukist til muna. Gríðarleg jarðskjálftavirkni hefur verið á svæðinu undanfarið og er jarðskjálftahrinan síðan í lok janúar sú stærsta sem mælst hefur frá upphafi. Hún sagði í samtali við Fréttablaðið að saga svæðisins bendi til þess að stór skjálfti sé í vændum sem gæti haft áhrif á allt höfuðborgarsvæðið.
Sjá nánar: Líkur á stórum skjálfta sem hefði áhrif á höfuðborgarsvæðið hafa aukist
Þá segir jafnframt í tilkynningu frá Reykjavíkurborg:
„Mikilvægt er að festa hillur og skápa vel við veggi og annað sem laust er og getur losnað. Gott er að hafa í huga að langflest hús á Íslandi eru byggð samkvæmt stöðlum og eiga að þola jarðskjálfta af þessari stærðargráðu.“