Margrét Björnsdóttir hjúkrunarfræðingur og fagstjóri hjá Heilsugæslunni í Garðabæ verður hjá Sjöfn Þórðar í þættinum Fasteignir og Heimili í kvöld:
Réttur handþvottur er mikilvægur og við foreldar erum fyrirmynd barnanna
Handþvottur er mikilvægasta sýkingavörnin sem hægt er að viðhafa því bein og óbein snerting er lang algengasta smitleið sýkla á milli manna. Sjöfn Þórðar heimsótti Margréti Björnsdóttur hjúkrunarfræðing á Heilsugæsluna í Garðabæ og ræddi við hana um mikilvægi handþvottsins til áminningar fyrir heimilin. „Með höndunum snertum við allt umhverfi okkar og með þeim komast sýklar inn í slímhúð, í munn, nef og augun. Með höndunum geta sýklar líka komist í matvæli og borist þannig í aðra,“ segir Margrét og minnir á ábyrgð okkar að vera líka góðar fyrirmyndir í handþvotti fyrir yngri kynslóðina. „Börnin gera eins og mamma og pabbi, og því þurfum við að vera meðvituð um okkar hlutverk heima fyrir líkt og annars staðar,“ segir Margréti. Sjöfn fær Margréti jafnframt til að sýna áhorfendum hvernig best er að þvo sér um hendurnar. Sjón er sögu ríkari.