Rekstrarstjóri Hafró fer fram í Kópavogi

Sigvaldi Egill Lárusson fjármála- og rekstrarstjóri Hafrannsóknastofnunar býður sig fram í 2. - 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Kópavogi, sem fram fer 12. mars næstkomandi.

Sigvaldi sendi frá sér fréttatilkynningu í dag þar sem segir að áherslumál Sigvalda Egils séu „fyrst og fremst málefni fjölskyldunnar, leikskólamálin, velferðarmál og hagkvæmni og skilvirkni í rekstri með sem lægstar álögur á íbúa og fyrirtæki.“

Sigvaldi hefur starfað í þrjú ár sem fjármálastjóri hjá Verkfræði- og náttúruvísindasviði Háskóla Íslands og núverandi starf hans er fjármála- og rekstrarstjóri Hafrannsóknastofnunar.

Sigvaldi er með meistaragráðu í reikningsskilum og endurskoðun frá Háskóla Íslands.