Rekstrarhalli gæti farið yfir 100 milljónir króna — Segja ríkið bera ábyrgð

Bæjarráð Hornafjarðar vill segja upp samningum sínum við Sjúkratryggingar Íslands vegna reksturs hjúkrunarheimilisins á Höfn.

Sveitarfélagið hefur um árabil rekið alla heilbrigðisþjónustu samkvæmt þjónustusamningum við Heilbrigðisráðuneytið eða Sjúkratryggingar Íslands en síðustu áramót færðist rekstur heilsugæslu, sjúkrarýma og sjúkraflutninga til HSU á Selfossi að ósk ríkisins. Sveitarfélagið vildi halda áfram að stofnunina en ekki náðust samningar um það.

Bæjarstjórnin samþykkti einnig á fundi þann 11. júní að segja upp samningum og óska eftir viðræðum við heilbrigðisráðherra um hvernig ríkið geti staðið betur að fjármögnun svo sveitarfélagið getu haldið áfram að reka þjónustuna.

„Sveitarfélagið Hornafjörður hefur rekið þennan málaflokk af myndugleika um langt skeið og hefur mikinn áhuga á að halda því verkefni áfram en sér sér engan veginn fært miðað við þær rekstrarforsendur sem núverandi fjárframlög frá ríkinu bjóða uppá,“ segir í tilkynningu frá sveitarfélaginu.

Rekstur á ábyrgð ríkisins

Rekstur á hjúkrunarheimilinu Skjólgarði hefur þyngst verulega undanfarin ár; eigið fé stofnunarinnar var neikvætt um 36,7 milljónir króna. Þá eru ótaldar lífeyrisskuldbindingar, um 34 milljónir króna, sem munu líklega falla á stofnunina. Rekstrarhalli í lok árs gæti farið yfir 100 milljónir króna.

Bæjarstjórn minnir á að rekstur hjúkrunarheimila sé á ábyrgð ríkisins samkvæmt lögum.

„Það er því með trega sem bæjarstjórn mun segja upp rammasamningi milli SÍ og sveitarfélagsins frá og með 7. júlí næstkomandi og óska eftir viðræðum við heilbrigðisráðherra um hvernig ríkið geti staðið betur að fjármögnun þannig að áframhald geti orðið á rekstri sveitarfélagsins á þjónustunni.“