Reiða­slag fyrir Eddu: „Við ætlum ekki að tapa trúnni á rétt­læti fyrir börnin okkar“

Edda Björk Arnar­dóttir, sem nam syni sína þrjá á brott frá föður þeirra í Noregi og flaug með þeim til Ís­lands, hefur tapað að­farar­máli sem faðirinn höfðaði á hendur henni en hann fór með for­sjá drengjanna í Noregi.

Þetta kemur fram í frétt DV.

Nú hefur Héraðs­dómur Reykja­víkur úr­skurðað að faðirinn geti farið í að­farar­að­gerð gegn Eddu og þýðir það að drengirnir verða fluttir frá henni og til föðurins í Noregi.

Sam­kvæmt lögum getur þessi að­gerð átt sér stað sex vikum eftir úr­skurðinn. Ljóst er að málinu verður á­frýjað til Lands­réttar og gæti það tafið að­farar­að­gerðina (eða komið í veg fyrir hana ef Lands­réttur snýr við úr­skurðinum), það fer að sjálf­sögðu eftir því hve­nær úr­skurður Lands­réttar fellur.

Edda segir niður­stöðuna vera í and­stöðu við vilja barnanna sjálfra.

„Von, trú og kær­leikur dugðu ekki að þessu sinni og tapaðist málið okkar fyrir Héraðs­dómi. En við ætlum ekki að tapa trúnni á rétt­læti fyrir börnin okkar og á­frýjun málinu að sjálf­sögðu. Ég ætla mér ekki að tíunda rök dómsins en get sagt að það var að öllu farið gegn skýrslu dómskvadds mats­manns og al­gjör­lega gegn ein­beittum vilja drengja sem eru tveir að verða 12 ára og einn 9 ára. Þó að við höfum tapað i Héraðs­dómi þá er það nú samt þannig að við eigum ást og traust barnanna sem vilja ekkert frekar en vera saman og hjá okkur. Það er verð­mætast og sannar­lega þess virði að berjast fyrir Að­ventan að byrja og hlökkum við til hennar í fyrsta sinn saman síðan 2017,“ skrifar Edda sjálf á Face­book