Regn birtir opið bréf til Ivu: „Hvernig getur fólk tekið því öðru­vísi en sem svo að þú sért haturs­full“

Regn Sól­mundur Evu­dóttir, lista­kvár og aktív­isti, birtir opið bréf til söng­konunnar og lög­fræði­nemans Ivu Marínar áVísir.is í dag.

„Kæra Iva Marín.

Ég var að horfa á við­talið við þig í Ís­landi í dag, og ég minntist þess þegar við kynntumst fyrst í MH, og hvað þú hefur alltaf verið vel máli farin. Það hentar ef­laust vel í lög­fræðinni. Ég man að þú varst ein af fyrstu mann­eskjunum til þess að óska mér til hamingju með nýtt nafn á Face­book á sínum tíma, fyrir 4 árum. En þær minningar verða mjög flóknar þegar þú stendur fast á því að þú hafir réttinn til þess að van­virða trans og kyn­segin fólk, þar með talið mig,“ skrifar Regn.

Mál Ivu klauf þjóðina fyrir skömmu er hún steig fram í hlað­varps­þætti Frosta Logas­sonar og greindi frá því að Ferða­mála­stofa klippti hana úr aug­lýsinga­her­ferð vegna skoðana hennar á trans­fólki.

Ákvörðunin tengdist að­komu Ivu að LGB-teyminu sem sagt hefur verið beita sér gegn réttindum trans­fólks og sé til­raun til þess að flytja inn trans­fóbíska orð­ræðu til Ís­lands.

„Þú heldur því fram að fólk megi ekki leggja kröfur á fólkið sem það um­gengst, en hvað eru mörk annað er kröfur? Myndi þér vera sama ef öll sem þú um­gengst færu stans­laust yfir þín mörk, á þeim for­sendum að það mætti ekki ætlast til af þeim að virða mörkin? Engum myndi líða vel í sam­fé­lagi þar sem má ekki setja mörk, eða krefjast þeirrar grund­vallar­virðingar að mörkin þeirra séu virt,“ skrifa Regn.

„Þú talar um að jaðar­setning sé ekki til, en svo talar þú líka um að berjast fyrir réttindum kvenna og sam­kyn­hneigðra, sem svo sannar­lega gefur til kynna að þar sé jaðar­setning að baki, og sú jaðar­setning er vissu­lega til staðar. Þetta við­tal við þig gerir mig mjög ringlað. Þarna eru margar þver­sagnir, þótt þú komir þeim mjög gáfu­lega frá þér,“ heldur Regn á­fram.

„Hvernig getur fólk tekið því öðru­vísi en sem svo að þú sért haturs­full í garð trans fólks, þegar þú tekur þátt í að stofna Ís­lands­deild stærstu trans­haturs­sam­taka í heiminum? Væri ég ekki kven­hatari ef ég stofnaði slík sam­tök um kven­hatur á Ís­landi?“ spyr hán.

„En mér þykir reyndar of vænt um konur, og fólk al­mennt, til að detta það í hug. Þó að þú hafir dregið þig í hlé frá téðum sam­tökum hefur þú aldrei beðist af­sökunar, né sýnt á neinn hátt að þér þyki fyrir því að slík haturs­sam­tök voru stofnuð af þér á Ís­landi. Síðan var nafnið þitt fyrir stuttu á undir­skriftalista sam­takanna sem þú stofnaðir, sem vildu fjar­lægja á­kvæðið um að banna bælingar­með­ferðir á grund­velli kyn­vitundar. Með öðrum orðum skrifaðir þú undir yfir­lýsingu sem styður notkun bælingar­með­ferða á trans fólki.“

Hán segir að um daginn var 16 ára stúlka myrt af jafn­öldrum sínum í Bret­landi, fyrir það eitt að vera trans.

„Við erum búin að eiga met­ár eftir met­ár í morðum og haturs­glæpum gegn trans fólki. Í nokkrum fylkjum í Banda­ríkjunum hafa verið lögð fram frum­vörp til að banna drag (aftur!), og það eru enn margar þjóðir með dauða­refsingu við hin­segin­leika. Anti-trans bar­áttan, sem þú ert hluti af, kemur niður á öllu hin­segin fólki, þar á meðal þér sjálfri. Með fleiri há­værum röddum, bæði á heims­vísu og á Ís­landi, sem öskra eftir út­rýmingu trans fólks, á­köll um að banna fólki að vera það sjálft, að á­saka það um glæpi sem það hefur ekki framið, verð ég hræddara og hræddara um öryggi mitt, vina minna og alls hin­segin fólks yfir höfuð.“

„JK Rowling, sem þú studdir svo stolt árið 2020, gefur allan hagnað sinn til sam­taka sem ýta undir hatur á trans fólki, sem hefur þær af­leiðingar að fólk flykkist saman til að hata trans fólk meira. Oftast út af fá­fræði, og einu upp­lýsingarnar sem þau fá um trans fólk eru frá þessum há­væru röddum sem spúa út úr sér rang­færslum, sem elur á hatri hjá fólki,“ skrifar Regn.

Hán segir að Iva getur ekki haldið því fram að hún virði fólk ef hún leggur metnað í að grafa undan réttindum þess og hags­munum með hatur­s­orð­ræðu.

„Og þá kemur að hatur­s­orð­ræðunni. Mál­frelsi er mikil­vægt, en það sem virðist vera al­gengur mis­skilningur um mál­frelsi, er að engar af­leiðingar fylgi orðum. En mál­frelsi þýðir að þú getur sagt hvað sem þú vilt, og haft þær skoðanir sem þú vilt, en þarft þá að gangast við af­leiðingum þess sem er sagt. Orðum fylgja af­leiðingar, alltaf. Við byggjum sam­fé­lagið að miklu leyti með orðum, og þú veist það sjálf. Það er á­stæða fyrir því að fólk er ó­sam­mála þér, og það er á­stæða fyrir því að fólk er reitt.“

„Ég myndi per­sónu­lega ekki ráða ras­ista, kven­hatara né nas­ista í vinnu, þrátt fyrir skoðana­frelsi, og ég held að flest myndu ekki vilja setja nafn fyrir­tækis síns við eitt­hvað sem þau eru ó­sam­mála, á mann­réttinda­grund­velli. Ég efa t.d. stór­lega að þú myndi vilja hafa mann­eskju í vinnu hjá þér sem hataði blindar lesbíur. Ég myndi samt alveg ráða mann­eskju þeirrar skoðunar að ananas á pizzu væri það versta sem hafði komið fyrir vest­ræna matar­gerð, þrátt fyrir að vera mjög ó­sam­mála, því það er skoðun sem stangast ekki á við grunnd­vallar­mann­réttindi fólks.“

„Það eru ekki mann­réttindi að fá að vera birt í aug­lýsinga­her­ferð, en það eru mann­réttindi að fá að lifa í sam­fé­lagi sem virðir til­veru­rétt mans. Þú hlýtur að vera sam­mála því, þú ert nógu klár til þess.

Kær kveðja,

Regn,“ skrifar hán að lokum.