Reglur ÁTVR koma í veg fyrir að bjór til styrktar Úkraínu fari í hillur: „Ekkert sem ég er stoltari af en þessi bjór“

Haukur Heiðar Leifs­son bruggari hjá Borg brugg­húsi kynnti net­verjum fyrir nýjum bjór til styrktar Úkraínu í dag.

„Frá því að þessi veg­ferð hófst í Borg að þá er ekkert sem ég er stoltari af en þessi bjór. Allur á­góði rennur til hjálpar­starfs í Úkraínu og bjórinn sjálfur er trylltur,“ skrifar Haukur á Twitter.

Í at­huga­semd við færslu Hauks spyr Guð­mundur nokkur hve­nær bjórinn mætir í hillur ÁTVR? Haukur segir honum að reglur ÁTVR koma í veg fyrir að bjórinn geti farið í sölu.

„Hann fer ekki í Vín­búðina þar sem ekki er hægt að koma vörum þar inn nema með mjög löngum fyrir­vara. Þetta er tak­markað magn en verður fáan­legur á kút og dós í bænum í kvöld. Skúli, Session, Stereo, Brewdog og á fleiri stöðum,“ segir Haukur.