Réðust vopnaðir inn í bíl ís­lensks pars og sögðu þeim að keyra að Metro

Tveir ís­lenskir karl­menn hafa verið á­kærðir fyrir að frelsis­svipta og ræna konu og karl árið 2020. Þetta kemur fram í frétt DV sem hefur á­kæruna undir höndum en málið verður tekið fyrir í héraðs­dóm í næstu viku.

Mennirnir eru sakaðir um að hafa svipt parið frelsi sínu með því að setjast í aftur­sæti bíls þeirra er hún var kyrr­stæð fyrir utan Hag­kaup í Skeifunni. Sviptu þeir parið frelsi í um klukku­stund, mis­þyrmdu fólkinu og neyddu manninn til að milli­færa 780 þúsund krónur inn á reikning annars þeirra. Er þetta orðað svo í á­kæru:

„Inni í bif­reiðinni lögðu á­kærðu hníf að hálsi þeirra, kýldu A í hægra gagn­augað og B eitt skipti í gagn­augað og gáfu henni einnig oln­boga­skot í gagn­augað, hótuðu að stinga þau með sprautu­nál og höfðu í líf­láts- og líkams­meiðingar­hótunum við þau. Á­kærðu skipuðu A að aka bif­reiðinni af stað og stöðva bif­reiðina við Glæsi­bæ, þar sem annar á­kærðu tók við akstri bif­reiðarinnar og ók henni í Fjöl­skyldu- og hús­dýra­garðinn í Laugar­dal, þar sem á­kærðu þvinguðu A til að milli­færa 780.000 kr. inn á reikning á­kærða Kristófers. Þaðan sögðu þeir A að aka bif­reiðinni að bif­reiða­plani við Metro við Suður­lands­braut þar sem á­kærðu tóku símana af A og B, annars vegar iP­hone X síma og hins vegar iP­hone 11, auk þess sem þeir tóku kveikju­láslykla bif­reiðarinnar áður en þeir yfir­gáfu hana. Af framan­greindu hlaut B vægan heila­hristing.“

Þess er krafist að mennirnir verði dæmdir til refsingar og greiðslu alls sakar­kostnaðar. Parið gerir einka­réttar­kröfu í málinu og krefst karl­maðurinn tæp­lega einnar og hálfar milljóna króna í skaða­bætur frá mönnunum tveimur til samans og konan krefst 700 þúsund króna.