Minjastofnun ákvað að ráðast í vísindalegan fornleifauppgröft í Mosfellsdal árið 2008 eftir að kona nokkur hringdi inn til stofnunarinnar og sagði að fjórir fornmenn hefðu vitjað hennar í draumi og tilkynnt henni hvar silfur Egils væri að finna. Þetta kemur fram í þættinum Fyrir alla muni sem verður sýndur á RÚV í kvöld.
Fjársjóðsins hefur lengi verið leitað og má með sanni segja að hann sé einhver frægasti fjársjóður Íslandssögunnar, hvort sem hann er raunverulegur eður ei. Ýmsar kenningar hafa komið fram um hvar silfrið sem Egill Skallagrímsson faldi er að finna en aldrei nokkru sinni hefur neitt af því fundist. Flestir telja það þó hljóta að liggja einhvers staðar í Mosfellsdal nálægt heimaslóðum Egils.
Árið 2008 gerðist það að kona nokkur hringdi til Minjastofnunar og sagðist vita hvar silfrið væri að finna. Hana hefðu heimsótt fjórir fornmenn í draumi og bent henni niður á stað í Mosfellsdal og sagt „Hér er silfrið".
Minjastofnun ákvað í kjölfarið að fylgja vísbendingunni eftir til öryggis og ráðast í uppgröft á svæðinu. Þar fannst þó hvorki tangur né tetur af silfrinu þó einhver ummerki eftir mannabústaði hefðu fundist.
Kristinn Magnússon, fornleifafræðingur hjá Minjastofnun, segir að þetta sé í eina skiptið svo hann muni sem ákveðið hafi verið að ráðast í vísindalegan uppgröft eftir vísbendingu úr draumi.
„Ég hugsa að ástæðan fyrir því sé efnið, við erum að tala um silfur Egils svo menn fylgja eftir flestum vísbendingum um hvar það gæti verið falið,“ segir Kristinn. „Það er ekki algengt að það sé ráðist í leit eftir vísbendingar úr draumum en silfrið lokkar menn.“