Netverjar eru gáttaðir á ummælum sem Brynjar Níelsson, aðstoðarmaður dómsmálaráðherra, hefur látið falla á Facebook um mál 16 ára piltsins sem tvívegis lenti í lögregluumsátri vegna þess eins að hann er brúnn og með sambærilega klippingu og strokufanginn Gabríel Douane Boama sem nú hefur verið handsamaður.
Mál stráksins vakti mikla athygli en hann var fyrst áreittur af lögreglunni í strætó, og síðar degi seinna í Bakarameistaranum þar sem hann var staddur að snæðingi með móður sinni. Brynjar var spurður að því á Facebook hvort hann ætli að tjá sig um alvarleika þess að lögreglan hafi mætt í fullum skrúða tvisvar til að handtaka barn algjörlega ótengt máli strokufangans.
Þá var Brynjar spurður að því hvort allir brúnir menn og strákar þyrftu að vera heima hjá sér þar til lögreglan fyndi strokufangann. Svar Brynjars hefur vakið mikla athygli.
„Það er ekki nýtt að slíkar ábendingar reynist rangar og má segja að slíkt gerist í öllum svona málum. Rauðhærðir og skeggjaðir lenda oft í þessu veseni. Menn þurfa að vera sérkennilega innréttaðir til að sjá rasisma í þessu máli, og jafnvel plebbalegir,“ skrifar Brynjar.
Netverjar á Twitter hafa þegar tjáð sig um málið. Einn segir: „Hver vill taka á sig að útskýra þetta fyrir BN? Ég persónulega hef enga orku í þetta kjaftæði.“
Annar netverji segir:
„Hvert sinn þegar Brynjar er að tjá sig (alltaf): „Siri, hvað er slæmt take í þessu máli“
Siri: „[slæmt take í máli]“
Brynjar: „Noted“