Landlæknir, sóttvarnalæknir og forstjóri Lyfjastofnunar hafa ákveðið að hefja rannsókn vegna tilkynntra aukaverkana við bóluefni Pfizer gegn COVID-19. Lyfjastofnun hefur fengið tilkynningar um fimm alvarlegar aukaverkanir sem gætu hugsanlega tengjast bólusetningu. Í öllum tilfellunum er um að ræða aldraða einstaklinga með undirliggjandi sjúkdóma og sem búa á hjúkrunarheimilum og hafa ber í huga að jafnaði látast 18 einstaklingar á dvalar- og hjúkrunarheimilum í hverri viku.
Búið er að bólusetja tæplega fimm þúsund manns, í fyrsta forgangshópnum eru framlínustarfsfólk Landspítalans og aldraðir sem dvelja á hjúkrunarheimilum.