Saksóknarar í Þýskalandi segja að hætta sé á því að rannsókn lögreglu á hvarfi og hugsanlegu morði á Madeleine McCann verði hætt. Christian Brueckner, 43 ára Þjóðverji, liggur undir grun í málinu.
Í frétt BBC er haft eftir Hans Christian Wolters, saksóknara í Braunschweig, að lögregla verði að fá frekari upplýsingar frá almenningi í tengslum við málið. Segjast saksóknarar hafa sankað að sér nægjanlegum gögnum til að halda því fram að Madeleine hafi verið drepin, en gögnin muni líklega ekki halda komi til þess að Christian verði ákærður.
Madeleine hvarf á Portúlga í maíbyrjun 2007, skömmu fyrir fjögurra ára afmælisdaginn sinn. Hvarf hennar er eitt umtalaðasta mannshvarf síðustu áratuga og hefur gríðarlegur þungi farið í rannsóknina á undanförnum árum.
„Við höfum sönnunargögn gegn viðkomandi sem benda til þess að hann hafi drepið Madeleine, en við teljum að gögnin dugi ekki til að gefa út ákæru að svo stöddu,“ segir Wolters í samtali við BBC og bætti við að raunhæfur möguleiki væri á því að rannsókn málsins verði hætt án þess að ákæra líti dagsins ljós.
„Við erum bjartsýnir á að þetta fari vel en við þurfum frekari upplýsingar,“ segir hann.