Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Vátryggingafélag Íslands til að greiða konu tvær og hálfa milljón króna í bætur. Konan var á leið í bifreið sína úr vinnu þann 18. desember 2015 þegar hún rann til í hálku með þeim afleiðingum að það snerist upp á hægri fót hennar.
Konan leitaði á slysadeild í kjölfarið og kvartaði yfir verkjum og mari á hægri olnboga og verkjum í hægri ökkla. Var konan greind með brot á svokallaðri dálkshnyðju og fékk hún gifs. Í matsgerð bæklunarlæknis var komist að þeirri niðurstöðu að örorka konunnar væri 5% eftir slysið.
Vátryggingarfélag Íslands viðurkenndi bótaskyldu í málinu en ágreiningurinn sneri að því hvort konan hefði verið búin að fá fullar bætur vegna slyssins. Vildi konan meina að rúmar 900 þúsund krónur sem hún fékk greiddar hefði verið innborgun á tjón hennar á meðan Vátryggingafélag íslands taldi að um lokauppgjör hefði verið að ræða.
Konan kvaðst aldrei hafa samþykkt fullnaðaruppgjör og vildi meina að tryggingafélagið hefði vitað að hún væri ekki sátt við matsgerð bæklunarlæknisins í málinu. Þá hafi félagið vitað að hún ætlaði að útvega sér nýja matsgerð. Ný matsgerð var gerð og var niðurstaða hennar að varanleg örorka konunnar eftir slysið væri 13%.
Dómurinn taldi rétt að fallast á kröfur konunnar í málinu og var niðurstaðan sem fyrr segir að tryggingafélagið þarf að greiða konunni rétt rúmar 2,5 milljónir króna. Gjafsóknarkostnaður málsins, 750 þúsund krónur, greiðist úr ríkissjóði.