„Rangt af mér að ýja að því að hann ætti að fokka sér“

Björn Leví Gunnars­son, þing­maður Pírata, og Kol­beinn Óttars­son Proppé, þing­maður Vinstri grænna, hafa átt nokkur orða­skipti að undan­förnu eftir að frum­varp Pírata um af­glæpa­væðingu neyslu­skammta fíkni­efna var fellt í at­kvæða­greiðslu á þinginu í vikunni.

Kol­beinn sagði í grein á Vísi í gær að nokkuð hafi vantað upp á að frum­varp Pírata væri full­klárað. Þá sagði hann að Svan­dís Svavars­dóttir heil­brigðis­ráð­herra ætlaði sér að leggja fram frum­varp um sama mál en nauð­syn­legt væri að vinna frum­varpið betur.

Björn Leví vandaði Kol­beini ekki kveðjurnar í færslu á Face­book í gær og sagði:

„Hér er fyrir­sögn fyrir þig: fokkaðu þér. Við vildum at­kvæða­greiðslu um málið þar sem þing­menn geta beitt sann­færingu sinni. Þessi út­úr­snúningur þinn er jafn ömur­legur og þessi mál­flutningur þinn í málinu.“

Í færslu á Face­book-síðu sinni í gær­kvöldi dró Björn Leví að­eins í land.

„Ég og Kol­beinn höfum rifist dá­lítið að undan­förnu. Hann heldur því til dæmis fram að ég geti ekki viður­kennt þegar ég hef rangt fyrir mér. Þrátt fyrir nokkur dæmi um slíkt,“ segir hann og heldur á­fram:

„Það var rangt af mér að ýja að því að hann ætti að fokka sér. Þrátt fyrir að ég sagði það ekki beint, þá er það líka rangt hjá mér að láta það líta þannig út. Þannig að í öllum túlkunum þessarar fram­setningar, þá er það rangt. Ef ein­hver efast um hvað ég meina, al­ger­lega án allrar kald­hæðni þá var þetta jafn rangt hjá mér og greinin hans var um af­glæpa­væðingar­málið.“