Rami Harven Gallego kom til Íslands tvisvar á þessu ári. Seinna skiptið tók hann meðal annars brúðkaupsmyndir af ókunnugum. Hann segir Ísland magnaðan stað og segir stórkostlega ferðasögu.
Þetta kemur framí Fréttablaðinu í morgun.
„Seinni ferðin mín til Íslands þetta árið var stórkostleg!“ segir ljósmyndarinn Rami Harven Gallego sem ferðaðist hringinn í kringum Ísland á dögunum með hópi ókunnugra og tók meðal annars brúðkaupsmyndir.
Fréttablaðið ræddi við Rami í aðdraganda ferðarinnar og þá sagðist hann vongóður um að finna brúðhjón sem væru til í að sitja fyrir á mögnuðum brúðkaupsmyndum í íslenskri náttúru.
„Við lentum í svo margvíslegum ævintýrum. Ég fór með vini mínum Stefáni, við elskum útivist og að taka myndir af náttúrunni.“
Rami segir nokkur augnablik hafa staðið upp úr í Íslandsferðinni. „Við festumst í Vestmannaeyjum í þrjár nætur út af óveðri. Svo neyddumst við til að breyta ferðaplönum út af vegalokunum í kjölfar óveðurs og sváfum í bílunum okkar á tjaldstæðum,“ segir Rami.
Hann segir þá félaga hafa elt norðurljósin 90 prósent tímans í ferðalaginu sínu án árangurs. „Þar til í blálokin þá sáum við þau loksins,“ segir Rami sem bætir því við að þau hafi verið mögnuð. Þá hafi það komið vel á óvart að sjá hreindýr á miðjum vegi.
„Það gekk nánast á okkur á miðjum vegi á meðan við keyrðum einhvers staðar fyrir suðaustan.“ Rami segist hafa kynnst góðu fólki á ferðalaginu. „Ég er upprunalega frá Filippseyjum og er vanari heitu hitabeltisloftslagi og ströndum,“ segir Rami hlæjandi.
Hann segist heillast af stöðum þar sem er kalt í lofti og því hafi hann búið í Kanada undanfarin ár. „En ég er alveg ástfanginn af Íslandi. Það var ekki spurning að mig langaði aftur þegar ég fór fyrr í haust svo ég keypti mér bara miða strax,“ segir Rami.
Hann bætir því við að það séu þrjár ástæður fyrir því að hann elski Ísland.
„Eitt: Ég er ljósmyndari og landslag Íslands er klárlega paradís listamannsins. Miðnætursólin í sumar og norðurljósin á veturna. Magnaðir jöklar og eldfjöll sem þú finnur bara á Íslandi. Númer tvö er klárlega lífsreynslan. Þessi tilfinning sem þú færð þegar þú stendur á fjallstoppi eða upplifir sól, rigningu og snjó allt á einum degi. Það er þessi tilfinning að þú sért að krossa eitthvað af bucket-listanum.“
Rami segir hið þriðja vera íslensku þjóðina. „Íslendingar eru svo gestrisnir og einstaklega hlýir. Það er líka stórt samfélag aðfluttra Filippseyinga sem tók okkur opnum örmum og aðstoðaði okkur á ferðalaginu.“