Fréttablaðið greinir frá því í dag að rakning á síma Bandaríkjamannsins Josh Neuman, sem var um borð í flugvélinni sem fórst á Þingvöllum, hafi síðdegis daginn sem vélinn hvarf sýnt nákvæmlega hvar hana var að finna í Þingvallavatni.
Þrátt fyrir þetta var leitinni ekki beint þangað sérstaklega fyrr en daginn eftir. Í fréttinni kemur fram að Fréttablaðið hafi fengið í hendur mynd úr leitarforritinu Find My iPhone um klukkan 19 á fimmtudagskvöld, en myndin sýndi rakningu á farsíma Josh.
Fylgdi sögunni að þessi gögn væru komin í gagnagrunn björgunarsveita. Munu þau einnig hafa gengið milli manna í flugheiminum hér heima. Taldi Fréttablaðið víst að stuðst væri við fyrrnefnd símagögn við leitina.
Það var þó ekki fyrr en morguninn eftir, á föstudag, sem stjórnendur leitarinnar kváðust hafa fengið ný gögn frá erlendu símafyrirtæki og upphófst þá sú mikla leit í Ölfusvatnsvík sem leiddi til þess að TF-ABB fannst á 48 metra dýpi á botni víkurinnar um miðnæturbil sama dag.
Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, segir að lögreglan hafi fengið upplýsingar um umrædd merki frá símanum aðfaranótt föstudags. Hann vill ekki segja nákvæmlega hvenær lögreglu bárust gögnin úr símanum, en Fréttablaðið greindi frá því á föstudag að þessi gögn hefðu legið fyrir á fimmtudag.
Aðspurður segist Oddur ekki vita hvers vegna gögnin hafi borist lögreglu svo miklu síðar. „Ég bara veit það ekki,“ segir hann í Fréttablaðinu í dag.