Reglur um fjöldatakmarkanir vegna COVID-19 faraldursins hafa orðið til þess að einungis nokkrir mega vera í einu ofan í heitum pottum, gerðist það þó í gær að heitum potti í Laugardalslaug var hreinlega lokað þar sem sundlaugargestir neituðu að hlýða.
„Sundlaugarstarfsmenn þurftu stöðugt að vera að rífast við fólk sem neitaði að hlýða reglum um hversu margir mættu vera í heitu pottunum. Á einum tímapunkti gafst ungur starfsmaður upp á að skammast í rígfullorðnu fólki, rak alla upp úr og lokaði pottunum,“ segir Tótla Sæmundsdóttir, fræðslustjóri Samtakanna 78, í færslu á Facebook.
Steinþór Einarsson, skrifstofustjóri hjá ÍTR, staðfesti í samtali við Vísi að slík atvik kæmu upp. Flestir gestir pössuðu sig á að halda sig í fjarlægð frá öðrum. „En sumir virða hvorki eitt eða neitt, virðast bara ekki hafa fylgst með og fer að rífast ef þetta er ekki eftir þeirra höfði. Og ef fólki er ekki treystandi þá verður einfaldlega að loka ákveðnum svæðum,“ sagði Steinþór.