„Mér finnst þetta galið! Og vandamálið er ekki nýtt af nálinni,“ segir sjónvarpskonan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir.
Ragnhildur Steinunn gerir frétt Fréttablaðsins frá því í morgun að umtalsefni á Facebook-síðu sinni. Í henni kom fram 737 börn, 12 mánaða og eldri, væru á biðlista eftir leikskólapláss í Reykjavík í byrjun janúarmánaðar. Þar af eru 200 börn 18 mánaða og eldri. Ragnhildur Steinunn segir að þetta sé galið.
Hún bendir á að fyrsta spurning margra foreldra þegar þeir gleðjast yfir strikinu á prikinu sé einmitt sú hvað þau eiga að gera við barn sitt eftir fæðingarorlof.
„Við fjölskyldan erum einstaklega heppin með dagmömmu og ég get varla hugsað mér að þeir þurfi einhvern tímann að kveðja hana og fara á leikskóla. En það er dýrt að vera með barn hjá dagforeldri - dýrt fyrir eitt barn og ennþá dýrara fyrir tvö, þrátt fyrir systkinaafslátt.“
Ragnhildur Steinunn bendir á að dagforeldrar séu sjálfstætt starfandi og verðskrá þeirra mjög mismunandi, allt frá 70 og upp í 100 þúsund krónur á mánuði fyrir eitt barn.
„Það kostar hjón með eitt barn um 27 þúsund krónur að vera með barn á leikskóla (8klst). Þið getið reiknað dæmið til enda. Mér finnst nokkuð ljóst að borgin þarf að gera betur,“ segir hún og bætir við að hún hafi heyrt af fólki sem hafi hreinlega flutt frá Reykjavík vegna þessarar stöðu, til dæmis í Garðabæ. Þá er bent á að staða mála í Hafnarfirði sé mun betri en í Reykjavík.
Margir taka undir þessi orð Ragnhildar Steinunnar, meðal annarra Edda Sif Pálsdóttir, íþróttafréttakona á RÚV.
„Þetta er svo óþolandi! Elskum að búa í vesturbænum, vorum heppin að komast að hjá dagmömmum sem samt eru í Laugardal og erum farin að skoða daglega fasteignaauglýsingar hjá öðru sveitafélagi. Svo ömurleg þjónusta að fá ekki einu sinni svör,“ segir hún.
Edda Björg Eyjólfsdóttir tekur einnig undir færsluna og segir einfaldlega: „Þetta er galið.“