Ragnhildur Þórðardóttir sálfræðingur og heilsufrömuður, betur þekkt sem Ragga nagli, segir merkilegt hvað sumir hafa ríka þörf fyrir að hamra níð og niðurrif á lyklaborðið í felum á bak við tölvuskjá.
Ragnhildur skrifar pistil í tilefni umræðu síðustu daga en sjónvarps- og fjölmiðlakonan Nína Richter birti pistil á Facebook-síðu sinni á dögunum sem vakti mikla athygli.
„Gullfalleg kona á sjónvarpsskjánum er útlitssmánuð af einhverjum sem hafði stórkostlega ranghugmynd að eftirspurn væri eftir hans áliti. Hún henti í hugrakkan pistil og vakti athygli almennings á hatursorðræðunni sem því miður grasserar á netinu eins og njóli á fjósvegg.
Það er merkilegt hvað tærnar kreppast víða og þörfin fyrir að hamra á lyklaborðið níð og niðurrif í felum bakvið tölvuskjá,“ segir Ragnhildur á Facebook-síðu sinni og birtir nokkur dæmi málið sínu til stuðnings.
"Sjáðu nefið á manninum"
"Hvað ertu komin marga mánuði á leið?"
"Ekki hægt að taka konuna alvarlega svona smámælta"
"Af hverju fer manneskjan ekki í laser með þessa valbrá"
"Alltof grannur."
"Alltof feitur"
Ragga segir að við komum með óumbeðið álit á útliti kollega, vinafólks, systkina. Til dæmis athugasemdir eins og þessa við erum dugleg í ræktinni: "Ekki kvenlegt að vera með svona stóra vöðva"
Ragga nefnir fleiri dæmi:
Þegar við spörslum í hrukkurnar og mökum lit á augnlokin.
"Rosalega ertu mikið máluð. Kann betur við þig náttúrulegri."
Þegar við sleppum farðanum.
"Ertu kvefuð, nefið á þér er svo rautt."
Þegar við ákveðum að vera maskaralaus.
"Ertu lasin? Þú ert svo þreytuleg."
Þegar við gúffuðum of mikið brauð í gær
Ragga bendir réttilega á að útlitið skilgreini ekki virði okkar sem manneskjur. Mörg húðflúr hamli þér ekki að halda í höndina á börnunum þínum.
„Útstæð eyru hindra þig ekki í að hlusta og hugga vinkonu í hjónabandserfiðleikum. Skakkar tennur stoppa þig ekki í að ausa hrósyrðum yfir vin þinn. Bólur á kinn eru engin fyrirstaða fyrir að sýna samferðafólki þínu samkennd og samhygð. Er feitur, bólugrafinn, tattúveraður, eyrnastór eða rauðnefjaður virkilega það versta sem mannskepna getur verið?
Er skarð í vör eitthvað sem við þurfum að hafa orð á?
Ragga spyr hvort ekki sé mun verra að baktala, rífa niður, skilja útundan, gaslýsa, samviskubitsvæða, vera afbrýðissamur, illa innrættur og sjálfhverfur.
„Er manneskjan skilningsrík, forvitin, hugmyndarík, áhugasöm, með háa samkennd, hlýja nærveru og kímnigáfu? Verum fyrirmynd fyrir komandi kynslóð og fögnum fjölbreytileika í mannlegu útliti og normalíserum allskonar liti og lögun, smetti og skrokka.
Hafðu hugrekki til að taka ekki þátt í útlitssmánun og vera þannig einn Legókubbur í að byggja betri framtíð þar sem við einblínum á manneskjuna en ekki hylkið sem hýsir hana.“