Ragnhildur með COVID-19: Birtir strangheiðarlega mynd af ástandinu

Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga nagli, glímir nú við COVID-19. Ragga greinir frá þessu á Facebook-síðu sinni og bendir á að hún hafi státað sig af því í gegnum tíðina að vera annálað hreystimenni sem fær varla hor í nös. En kórónuveiran fer greinilega ekki í manngreinarálit.

„Þrátt fyrir slavíska grímunotkun, óhóflegan handþvott, stöðuga sprittun, tveggja metra reglu, olnbogaskot og félagslega einangrun þá dúndraði Rónan sér inn með hausverk, háan hita, beinverki og slappleika,“ segir Ragga sem bætir við að lyktar- og bragðskyn hafi haldið velli. Segir Ragga að það séu einkar góð tíðindi fyrir matargat eins og hana.

„Hér fáið þið strangheiðarlega ljósmynd af ástandinu, engar krúsidúllur né ondúleringar.

Bara ófilteraður raunveruleiki af baðherberginu á Norðurbrú Kaupmannahafnar. Með flugvélagrímu eftir sautjánda lúr dagsins,“ segir hún en Ragga er búsett í Danmörku eins og kunnugt er.

Hún segist staðráðin í að hrista þetta af sér því enginn hafi tíma í að liggja í bælinu, sérstaklega þegar sinna þarf skjólstæðingum.

„Svo liggja stangir og lóð í kjallaranum sem örugglega sakna þess að vera ekki brúkuð daglega. Allavega saknar Naglinn þeirra.“

Kórónaveiran fer greinilega ekki í manngreinarálit og tók sér bólfestu í Naglanum sem hefur státað sig gegnum tíðina af...

Posted by Ragga Nagli on Fimmtudagur, 15. apríl 2021