Ragnhildur fékk COVID og er búin að fá tvo skammta af bóluefni

Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga nagli, smitaðist af COVID-19 í apríl síðastliðnum. Það eru ekki margir sem lifa heilsusamlegra lífi en Ragga en þrátt fyrir það smitaðist hún og varð talsvert slöpp.

Í pistli á Facebook-síðu sinni, sem vakið hefur talsverða athygli, skrifar hún um mikilvægi þess að láta bólusetja sig gegn veirunni. Þrátt fyrir að hafa smitast hefur Ragnhildur nú fengið tvo skammta af bóluefni gegn veirunni enda segist hún vilja vernda náungann.

Í pistli sínum bendir Ragga, sem er menntaður sálfræðingur og búsett í Kaupmannahöfn, á að hún hafi mætt reglulega í ræktina frá árinu 1998. „Járnrífingar, Crossfit, sprettir, liðleikaæfingar. Mataræði Naglans er 95% óunnin matvæli sem koma beint úr jörðu eða af skepnu með aðeins eitt innihald.“

Hún bendir á að hún fasti í 12-14 tíma á sólarhring, dekki allavega þrjá lítra af vatni á degi hverjum og taki inn allskonar vítamín. „Göngutúr úti í náttúrunni eftir kvöldmat er lög og regla og Naglinn hakar við allavega 10.000 skref á dag. Sefur eins og ungabarn í 8-9 tíma á hverri nóttu.

En þrátt fyrir að stunda þennan heilsusamlega lífsstíl fékk hún COVID og segir hún að veiran spyrji greinilega ekki um stétt eða stöðu, aldur eða útllit, hreysti eða heilsu.

„ALLIR geta smitast af COVID.... alveg sama hvað þeir gúlla mikið af bætiefnum, sofa mikið eða skrifa margar tilfinningar í dagbók. Enginn er óhultur fyrir þessari veiru og við getum smitast þrátt fyrir bóluefni, en þau veita samt meiri vernd fyrir að verða mjög lasin af Rónunni,“ segir Ragga sem er komin með tvo skammta af bóluefni í sig.

„Því Naglinn vill vernda náungann. Því við erum öll í þessari baráttu saman. Því við berum öll ábyrgð.“