Ragn­hildur birtir mynd af sér og skila­boð sem eiga erindi við alla

Ragn­hildur Þórðar­dóttir, betur þekkt sem Ragga nagli, birti mynd af sér á Face­book-síðu sinni í gær. Það væri vart í frá­sögur færandi nema fyrir skila­boðin sem fylgdu um­ræddri mynd – skila­boð sem eiga erindi við svo marga nú á tímum á­hrifa­valda á sam­fé­lags­miðlum og ó­raun­hæfra út­litskrafna.

„Ojjjj..... sérðu hvað ég er gömul og hrukk­ótt?? Ég ætla aldrei að pósta þessari mynd !!! argaði Naglinn þegar bóndinn hafði smellt af einni í morguns­árið eftir æfingu. Ekki snefill af farða. Hrukkur. Undir­haka. Bólur. Hár­æða­slit í kinnum eins og á Gísla Súr­syni. Fitugur hár­svörður og skítugar lýjur. Myndin er dæmi um konu eins og hún kemur af kúnni,“ segir Ragga sem er klínískur heilsu­sál­fræðingur.

Ragga bendir á að í kórónu­veirufar­aldrinum höfum við eytt meiri tíma en áður með and­litið borað ofan í snjall­símann á Insta­gramminu.

„Skrollandi skjáinn barma­full af "ekki-nógunni" vegna þess að of margar upp­stilltar og ondúleruðar sjálfs­myndir lenda á sjón­himnunni. Pósan út­úrpæld. Rétt sjónar­horn svo betri hliðin njóti sín. Rétta filternum smellt yfir til að fá rómantíska dul­úð,“ segir Ragga sem hvetur fólk til að til­einka sér annað hugar­far.

„Hrukkur eru landa­kort lífsins um hvað þú hefur gengið í gegnum. Hver hrukka í kringum augun er merki um hvað þú hefur oft hlegið og brosað. Djúpi dalurinn milli augn­brúnanna er gáfna­merki um öll skiptin sem þú hefur verið djúpt hugsi að hjálpa öðrum. Þú hefur unnið fyrir hverri hrukku með að lifa lífinu.“

Ragga bendir á að við þurfum ekki að rembast við að ríg­halda í æsku­ljómann eins og lauf í vindi.

„Heil­brigð manneskja úsar út kyn­þokka, þroska, reynslu og sjálfs­trausti. Hamingju­söm manneskja er ekki endi­lega sú sem kemst enn­þá í fermingar­kjólinn sinn á fimm­tugs­aldri. Hamingju­söm manneskja er um­kringd ást­ríku fólki og hefur til­gang og ást­ríðu. Heil­brigð manneskja er hamingju­söm manneskja,“ segir hún.

Hún bætir við að fólk eigi ekki að treysta á út­litið til að veita hamingju því ytra byrðið breytist með tímanum.

„Treystu á inn­rætið til að gefa þér fegurð og hamingju. Bættu heilsuna með góðu matar­æði, hreyfingu, öflugu fé­lags­lífi og já­kvæðum hugsunum og þá verðurðu meira að­laðandi. Það er ó­keypis fegrunar­að­gerð,“ segir Ragga sem endar sinn kraft­mikla pistil á þessum orðum:

„Hvernig við birtumst öðrum skiptir svo miklu minna máli en hvernig við látum öðrum líða, hvað við segjum og hver við­horf okkar eru. Fegurðin liggur í inn­volsinu. Um­hyggju. Sam­kennd. Vin­áttu. Ást. Gleði. Húmor. Hug­rekki. Ekki um­búðunum.“

Ojjjj..... sérðu hvað ég er gömul og hrukkótt?? Ég ætla aldrei að pósta þessari mynd !!! argaði Naglinn þegar bóndinn...

Posted by Ragga Nagli on Fimmtudagur, 11. febrúar 2021