Ragnhildi brugðið þegar hún opnaði Morgunblaðið: „Sumir gera allt fyrir peninga!“

„Opnaði Morgunblaðið í morgun við mér blasti þessi ógeðþekka guðlastsauglýsing. Ég er hissa á Morgunblaðinu að taka svona guðlast til birtingar sem er særandi fyrir trúartilfinningar kristins fólks. Sumir gera allt fyrir peninga!“

Þetta segir Ragnhildur Pála Ófeigsdóttir, ljóðskáld og framákona í Sjálfstæðisflokknum, á Facebook-síðu sinni. Þar birtir hún mynd af síðu 3 í Morgunblaðinu í dag þar sem finna má auglýsingu fyrir nýjan gosdrykk, svokallað Jesúlaði frá Öglu gosgerð. „Frískandi fyrirgefning að ofan,“ segir meðal annars í auglýsingunni um þennan léttgerjaða sítrusdrykk.

Ragnhildur Pála, sem hefur meðal annars setið í stjórn Hvatar, félags Sjálfstæðiskvenna í Reykjavík, gefur auglýsingunni ekki háa einkunn og vísar til þess að frelsarinn sjálfur sé notaður til að markaðssetja gosdrykk.

Færsla Ragnhildar hefur vakið töluverða athygli og taka margir undir með henni. Gústaf Níelsson, sagnfræðingur og bróðir Brynjars Níelssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, segir til dæmis: „Það er kannski ekki rétt að skjóta sendiboðann, en það sætir furðu hvað alls kyns smekkleysa á greiðan aðgang að fjölmiðlum.“

Herdís Þorgeirsdóttir, lögmaður og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, segir að líkast til sé lítið hægt að segja. „Flokkast undir tjáningarfrelsi, segir Mannréttindadómstóll Evrópu.“

Erna Hauksdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir einfaldlega: „Smekkleysa“. Fleiri athugasemdir eru í svipuðum dúr: „Nú er ég orðlaus. Mest er ég hissa (og hneyksluð) á því hversu fólk er hugmyndasnautt varðandi heiti á gosdrykk. Að nota þetta heiti er langt fyrir ofan minn skilning,“ segir í einni athugasemd.