Ragnheiður sjóðandi ill: Rukkuð um 145 þúsund krónur eftir fráfall eiginmanns síns– „Hverju má búast við næst?“

Ragnheiður Jósefsdóttir, íbúi á Tálknafirði, er allt annað en sátt við Tryggingastofnun vegna rukkunar sem henni barst í sumar. Ragnheiður, sem er 81 árs, skrifaði pistil um málið á Facebook og hefur hann vakið gríðarlega athygli.

Málið varðar rukkun sem Ragnheiður fékk í sumar upp á rúmar 145 þúsund krónur. Kom á daginn að skuldin væri til komin vegna greiðslna úr lífeyrissjóði mannsins hennar, en hann lést í janúar síðastliðnum. Í bréfinu segir hún að kominn sé tími á að ellilífeyrisþegar og öryrkjar fái að lifa mannsæmandi lífi.

Ragnheiður veitti Hringbraut góðfúslegt leyfi til að endurbirta pistilinn og má lesa hann í heild hér að neðan.


Bréf Ragnheiðar

Eftirfarandi bréf sendi ég til Tryggingastofnunar fyrir nokkrum dögum. Ég vil gjarna að sem flestir fái að sjá efni þess.

Tilefni þessa bréfs er vegna bréfs ds. 11 júní sl. sem ég fékk frá ykkur. Þar kemur fram að ég skuldi Tryggingastofnun 145.836kr, vegna ofgreiðslna. Ég hugsaði bara, hver fjandinn er í gangi og ég varð alveg sjóðandi ill.

Svo kom i ljós að þetta var vegna greiðslna úr lífeyrissjóði mannsins míns, en hann lést 31. janúar sl. Og ekki nóg með það, heldur minnkuðu greiðslur til mín frá Tryggingastofnun um u.þ.b. 30.000kr á mánuði, og á ég þá við útborgað.

Hverju má búast við næst? Hvers vegna má maður ekki hafa þetta í friði? Ég veit að ég er ekki ein um að lenda í þessu og ég segi fyrir hönd allra sem verða fyrir þessu, þetta er þjófnaður! Lögverndaður þjófnaður. Þið passið upp á það eins og sjáöldur augna ykkar að við fáum ekki einni krónu meira en það sem okkur er skammtað, eins og skítur úr hnefa.

Ég spurðist fyrir um hvernig það væri með 100 þúsundin sem var sagt að við mættum þéna á mánuði án þess að það myndi skerða bætur. Jú, svörin voru þau að það væri vegna vinnu, ekki lífeyrissjóðsgreiðslna. En af hverju eru þá lífeyrissjóðsgreiðslurnar kallaðar laun.

Hvernig fyndist ykkur ef þið tækjuð að ykkur aukavinnu og þau laun yrðu dregin af ykkar föstu launum? Þið mynduð að öllum líkindum svara að það væri allt annað mál. Nei! Það er ekki allt annað mál, það er alveg það sama og verið er að gera okkur.

Þegar maki fellur frá þá minnka tekjur heimilisins um 50% eða jafnvel meira. En rekstur heimilisins minnkar ekkert. Fasteignagjöld verða þau sömu. Upphitunarkostnaður, rafmagn, viðhald á húsi, rekstur á bíl og margt margt fleira er það sama. Það eina sem minnkar örlítið er matarkostnaður en þó ekki teljandi. Mér virðist að þið sem stjórnið þessu, gerið ykkur ekki grein fyrir þessu, ekki skilja eða viljið ekki skilja þetta.

Er ekki kominn tími til að það sé farið að hugsa um að við ellilífeyrisþegar og öryrkjar erum fólk alveg eins og þið og við viljum lifa mannsæmandi lífi. Ég vil nefna svona hinsegin að nú er komið að miklum endurbótum og viðhaldi á húsinu mínu sem gæti kostað einhverjar miljónir og ég þurfti í vor að fá mér heyrnartæki sem kostuðu 500.000 krónur. Þið takið kannski tillit til svona mála? HAHAHA...bjartsýn ég!

Fyrir hönd allra sem í þessu lenda, er mál að linni. Hvernig stjórnvöld fara með okkur! Ég mun einnig birta þetta bréf í fjölmiðlun til þess að alþjóð sjái hversu svívirðilega er farið með okkur og hvers þeir mega vænta sem eiga eftir að ganga í gegnum það að verða eldri borgarar eða öryrkjar. Ég held að margir geri sér ekki grein fyrir hvernig er farið með okkur.

Svo þegar öryrki verður eldri borgari þá minnka bæturnar, sennilega vegna þess að hann er ekki öryrki lengur, heldur eldri borgari. Ég segi enn og aftur, það er mál að linni árásum á eldri borgara og öryrkja.