Ragnheiður óttast að snúa aftur verði Sólveig Anna formaður: „Hún er búin að gefa al­gjört skot­leyfi á okk­ur“

Ragnheiður Valgarðsdóttir, annar trúnaðarmanna starfsfólks Eflingar, veit ekki hvort hún eigi afturkvæmt úr veikindaleyfi fari svo að Sólveig Anna Jónsdóttir verði aftur formaður félagsins.

Þetta sagði Ragnheiður í viðtali við mbl.is í gærkvöldi en eins og kunnugt er hefur Sólveitg Anna tilkynnt að hún ætli að bjóða sig fram til formanns Eflingar eftir að hafa sagt af sér á síðasta ári. Kosningar fara fram í þessum mánuði og býður Sólveig Anna sig fram til formanns auk þess sem listi hennar býður sig fram í stjórn.

Ragnheiður kveðst ekki viss um að hún geti lagt það á sig að snúa aftur til starfa fari svo að Sólveig Anna og listi hennar beri sigur úr býtum.

„Ætlar hún að biðja starfs­fólkið af­sök­un­ar ef hún kem­ur aft­ur? Hvernig ætl­ar hún að koma inn og stjórna vinnustaðnum? Hún verður að biðja starfs­fólkið af­sök­un­ar á hegðun sinni af því þetta end­ur­spegl­ar ekki það sem hún ætl­ast til af fyr­ir­tækj­um og stofn­un­um úti í bæ,“ sagði Ragn­heiður meðal annars í viðtalinu við mbl.is og bætir við að Sólveig Anna hafi ýjað að því í kommentum að starfsfólkið séu einhverjir ónytjungar sem eru áskrifendur að laununum sínum, vinni ekki vinnuna sína og skilji þar að auki

„Það sem sær­ir okk­ur er það að hún er búin að æsa upp fé­lags­menn og aðra í kommentakerfum til að tala illa um okk­ur. Hún er að búa til óvild gagn­vart okk­ur til að skara eld að sinni köku. Hún er búin að gefa al­gjört skot­leyfi á okk­ur. Það er al­gjör­lega óviðeig­andi og skap­ar van­traust á milli fé­lags­manna og starfs­fólks.“

Viðtalið við Ragnheiði má lesa í heild sinni hér.