Sundgarpurinn, ólympíufarinn og leikkonan Ragnheiður Ragnarsdóttur var hótað lífláti eftir að hún birti mynd af sér úr Yellowstone þjóðgarðinum í Bandaríkjunum.
Fréttablaðið greinir fyrst frá málinu. Þar segir að leikkonan hafi birt afsökunarbeiðni eftir að hafa birt mynd þar sem leit út fyrir að hún væri inni á hverasvæði þar sem bandarískum lögum samkvæmt má ekki labba.
Fólk brást ókvæða við og jós yfir Ragnheiði fúkyrðum á samfélagsmiðlum. Ragnheiður segist hafa tekið færsluna um afsökunarbeiðnina út eftir að henni bárust líflátshótanir.
Frétt Fréttablaðsins í heild sinni.
Fréttablaðið/Skjáskot