Ragnari lækni nóg boðið: Peningum skattgreiðenda eytt í glæsi­legar skrif­stofur

„Við gerum minna! Þrátt fyrir meiri pening og fleiri starfs­menn,“ segir Ragnar Freyr Ingvars­son læknir.

Ragnar deilir þar um­fjöllun Við­skipta­blaðsins á dögunum þar sem fjallað var um ný­lega skýrslu heil­brigðis­ráðu­neytisins. Í skýrslunni er meðal annars bent á það að fjár­mögnun ís­lenskra sjúkra­húsa sé ó­skil­virk og þá sé ein mesta starfs­manna­fjölgunin hjá starfs­fólki sem vinnur „önnur“ störf á spítalanum.

Ragnar skrifaði færslu á Face­book um helgina sem vakti tals­verða at­hygli en í henni nefnir hann að um sé að ræða aðra svarta skýrslu um frammi­stöðu LSH á liðnu ári. Sú fyrri hafi fjallað um bráða­mót­tökuna og á­standið sé nær ó­breytt.

„Fjöldi starfs­manna hefur stór­aukist á liðnum 5 árum en fram­leiðni hefur minnkað - við gerum minna! Minna! Öllu þessu fólki hefur verið raðað inn á skrif­stofur deilda sem EKKI sinna sjúk­lingum.“

Ragnar merkir Svan­dísi Svavars­dóttur heil­brigðis­ráð­herra í grein sinni og segir að hún hafi greint stolt frá því í Morgun­blaðinu síðasta haust að hafa aukið fjár­fram­lög um meira en þriðjung til opin­bera kerfisins.

„Takk kær­lega! En, við eyddum því í skrif­stofu­fólk og stóla undir þessa skrif­stofu­starf­semi! Nýtt lag af stjórn­endum (nýtt skipu­rit) með nýjar glæsi­legar skrif­stofur með fjölda rýma. Við getum ekki enda­laust bætt við verk­efna­stjórum, gæða­stjórum og milli­stjórn­endum þegar okkur vantar fólk á gólfið! Þetta þarf að skoða og svo endur­skoða.“