Ragnari illa brugðið eftir óhugnanlegt atvik í gær: „Eg sit núna einn heima og titra allur“

Ragnar Rúnar Þorgeirsson, sem sló í gegn með bröndurum sínum á netinu fyrir nokkrum árum, lenti í óhugnanlegri reynslu í gær. Ragnar lýsti þessu í færslu á Facebook-síðu sinni sem fréttavefur DV fjallaði um í morgun.

Í færslunni segir Ragnar að þrír menn hafi ruðst inn á heimili hans í Hafnarfirði í gær og höfðu þeir í hótunum við hann. Að svo búnu tóku þeir bíl hans traustataki og óku í burtu.

Í umfjöllun DV kemur fram að mennirnir hafi talið son Ragnars vera í skuld en sonur hans er úti á sjó og þar að auki ekki búsettur hjá Ragnari. Hann kveðst hafa hringt í 112 eftir að mennirnir fóru og kom lögreglan á vettvang. Bíllinn fannst nokkru síðar og fær Ragnar hann væntanlega síðar í þessu viku.

Í færslu sinni, sem DV vitnar til, segir Ragnar meðal annars:

„Eg sat i mestu makindum hér heima og var að horfa á sjónvarpið þegar það var bankað hjá mér og fyrir utan stóðu 3 menn og ruddust inn og spurðu mig hvort að strákurinn minn væri heima.

Eg sagði eins og var að hann væri út á sjó. Einn þeirra átti í viðskiptum við strákinn minn og þeir voru uppdópaðir og heiftinn í þeim og mér var ekki sama en ég var samt hin rólegasti á meðan á þessu stóð.

Einn þeirra fór um alla íbúð og rótaði í öllum skúffum og fór svo inn í eldhús og gramsaði í lyfjunum mínum.“

Ragnar bætti svo við að mennirnir hafi hótað að rústa íbúðinni og stela verðmætum, en hætt við þegar hann sagði þeim að strákurinn ætti engin verðmæti í íbúðinni.

„Eg sit núna einn heima og titra allur ennþá með dúndrandi hausverk en ég jafna mig vonandi,

Það sem ég skil ekki að hann skuli ráðast á mig. Þetta er bara á milli þeirra. Hann á bara að láta mig í friði.“

Ragnar sagði í samtali við DV í gærkvöldi að hann ætlaði að leggja fram kæru í dag vegna málsins. Engin ástæða væri til að hlífa mönnunum.

Hér má lesa alla umfjöllun DV um málið.