„Mér er sjaldan misboðið en þessu varð ég að svara,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, á Facebook-síðu sinni.
Ragnar Þór skrifaði pistil sem birtist á vef Vísis í gærkvöldi þar sem hann svaraði grein Ingibjargar Óskar Birgisdóttur sem birtist í sama miðli á dögunum. Ingibjörg er stuðningsmaður Helgu Guðrúnar Jónasdóttur sem berst nú um formannsstöðuna í VR við Ragnar.
Í grein sinni, sem bar yfirskriftina Áhugalítill formaður VR, sagði Ingibjörg meðal annars að helsta hlutverk Ragnars Þórs á sviði sjúkrasjóðs VR hafi verið að rýra réttindi félagsmanna stórlega með „fullkomlega ábyrgðarlausri auglýsingaherferð um kulnun, sem varð til þess að ásókn í sjóði stéttarfélaganna óx upp úr öllu valdi svo að stefnir í algjört óefni.“
Ragnar svarar þessum skrifum í pistlinum sem birtist í gærkvöldi og í færslu á Facebook-síðu sinni í morgun.
„Mótframboðið vill meina að þúsundir félagsmanna okkar, og annara stéttarfélaga, séu að gera sér upp veikindi. Vegna þess að þau sáu auglýsingu frá VR. Að þúsundir kvenna, margar hverjar einstæðar mæður, hafi ekki örmagnast vegna langvarandi álags heldur hafi fengið hugmynd í gegnum auglýsingaherferð VR um hvernig svindla megi á sjúkrasjóðum stéttarfélaganna eða ná út úr þeim peningum. Ég á bara ekki til eitt einasta aukatekið orð,“ segir hann.
Í grein sinni sagði Ragnar meðal annars að kulnun og streita væru ekki einhver hugtök heldur alvarlegt ástand sem rekja megi til margra samliggjandi þátta.
„Kvíði og langvarandi áhyggjur og álag brjóta niður fólk og fjölskyldur. Einkennin geta verið mjög alvarleg og afleiðingarnar skelfilegar og langvarandi. Það þekkja allir sem þekkja til eða hafa lent í sjálfir.“
Mér er sjaldan misboðið en þessu varð ég að svara. Mótframboðið vill meina að þúsundir félagsmanna okkar, og annara...
Posted by Ragnar Þór Ingólfsson on Miðvikudagur, 10. mars 2021