„Það hefur verið þessari ríkisstjórn afar farsælt að fylgja ráðum Landlæknis og sóttvarnalæknis. Vonum að hún geri það áfram,“ segir Ragnar Freyr Ingvarsson, sérfræðingur í gigtar- og lyflækningum og umsjónarlæknir COVID-19 göngudeildarinnar.
Ragnar deilir í morgun frétt RÚV frá því í gær þar sem rætt var við Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóra Samtaka ferðaþjónustunnar. Jóhannes sagði þar mjög mikilvægt að litakóðunarkerfið, sem til stendur að taka upp þann 1. maí næstkomandi, verði tekið upp.
Mjög skiptar skoðanir hafa verið um þetta í þjóðfélaginu í ljósi fjölda smita sem greinst hafa að undanförnu, fyrst á landamærunum og svo úti í samfélaginu. Ef kerfið verður tekið upp munu misstrangar reglur gilda um þá sem koma til landsins, allt eftir stöðu faraldursins í því landi sem viðkomandi kemur frá.
Alma Möller landlæknir sagði við Kastljós í fyrrakvöld að hún efaðist um réttmæti þess að taka kerfið upp. „Ég tel að við eigum áfram að viðhafa ítrustu varkárni á landamærunum og að það sé kannski ekki tímabært að fara að opna þau meira,“ sagði hún og bætti við að faraldurinn væri á flugi erlendis, mörg afbrigði veirunnar sköpuðu vanda og þá væru bólusetningar ekki mjög langt komnar hér á landi.
Jóhannes Þór sagði við RÚV að sóttvarnaryfirvöld væru að reyna að grafa undan ákvörðun ríkisstjórnarinnar. „Það er orðið svolítið sérstakt þegar menn eru farnir að gera það nánast daglega í fjölmiðlum að reyna að grafa undan ákvörðunum ríkisstjórnarinnar sem eru ekki teknar á einhverjum duttlungum heldur á grunni mjög faglegrar og ítarlegrar skýrslu,“ sagði Jóhannes við RÚV.
Ragnar Freyr, sem staðið hefur í framlínu lækna í COVID-faraldrinum, er þeirrar skoðunar að farsælast væri að hlusta á ráðleggingar sérfræðinganna. Hingað til hefði það gefist ágætlega að hlusta á landlækni og sóttvarnalækni.
Það hefur verið þessari ríkisstjórn afar farsælt að fylgja ráðum Landlæknis og sóttvarnalæknis. Vonum að hún geri það...
Posted by Ragnar Freyr Ingvarsson on Miðvikudagur, 31. mars 2021