Ragnar Freyr Ingvarsson, sérfræðingur í gigtar- og lyflækningum, varð hugsað til sjúklings á tíræðisaldri þegar hann las viðtal við Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra í gær.
Ragnar segir frá þessu á Facebook-síðu sinni en sjúklingurinn, rúmlega níræð kona, lá á ganginum á Bráðamóttökunni í fyrrakvöld.
„Hún lá þarna alla vaktina, hafði verið þarna frá því fyrr um daginn og var ennþá þegar ég fór af vaktinni á miðnætti. Undir flúorljósum fyrir allra augum. Örskammt frá hurðinni þar sem starfsmenn sjúkrabílanna biðu í röðum með sjúklinga á börum í bið eftir plássi,“ segir Ragnar og bætir við:
„Hún spurði starfsfólk nokkrum sinnum af hverju hún væri höfð á ganginum og hversu lengi hún þyrfti að bíða. Við áttum fá svör. Hún horfði heldur döpur til baka. Og við úrræðalaus á móti. Við sinnum öllum?“
Í viðtalinu við Willum sem birtist á vef Vísis í gærdag sagði hann það alvarlegt ef álag á bráðamóttöku bitnar á sjúklingum. Hann ítrekaði þó að öllum væri sinnt.