Ragnar Þór: Vona að almenningur láti ekki krónu í þetta fyrirtæki

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, kveðst vona að hvorki almenningur né lífeyrissjóðir láti krónu í Síldarvinnsluna. Samherji hyggst selja meira en fjórðung af eignarhlut sínum í fyrirtækinu í útboði sem fram far þann 10. til 12. maí næstkomandi.

„Síldarvinnslan með þjóðarauðlind sett á markað,“ er yfirskrift pistils sem Ragnar skrifar á Facebook en þar veltir hann fyrir sér stöðu lífeyrissjóðanna varðandi fjárfestingu í félaginu sem stjórnað er af einstaklingum „sem liggja undir rökstuddum grun um peningaþvætti, skattaundanskot, launaþjófnað og mútur í mörgum löndum“ eins og hann orðar það. Segir Ragnar að það hljóti að flokkast undir skipulagða alþjóðlega glæpastarfsemi.

„Eða á að veiða almenning inn í net útgerðarfyrirtækja sem hluti af "sátt" um kerfið, sem þá verður komið í eigu almennings að hluta, en stjórnað af sama fólki og almenningi þannig seld eigin auðlind og fullkomna þannig vitleysuna og ránið á auðlindum þjóðarinnar,“ spyr Ragnar.

Hann heldur áfram:

„Ég leyfi mér að vona að hvorki almenningur né sjóðir í okkar eigu láti krónu í þetta fyrirtæki en krefjist að sama skapi breytinga á þessu kerfi áður en það verður um seinan. Við höfum kjörið tækifæri í næstu Alþingiskosningum. Um nákvæmlega þetta eiga næstu Alþingiskosningar að snúast.“

Kjarninn fjallaði um útboðið á vef sínum í vikunni, en í umfjölluninni var bent á að ef verð á hlutum verður í hærra enda verðbils og eftirspurn eftir hlutum kallar á stækkun á útboðinu muni hluthafar sem selja fá alls tæpa 29 milljarða króna í sinn hlut. Samherji myndi þannig fá tæpa 12 milljarða króna.