Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, biðlar til stjórnvalda og Samkeppniseftirlitsins að hefja rannsókn á tengslum eigenda íslenskra fjarskiptainnviða og hverjir raunverulegir eigendur eru. Í ítarlegri færslu á Facebook segir Ragnar Þór að hann, sem og fleiri, finnist vera maðkur í mysunni á sölu Símans á Mílu. „Með smá vinnu og góðri hjálp frá Google komst ég að ótrúlegum “tilviljunum” um þessi viðskipti. Og virðist málið vera miklu alvarlegra og dýpra en mig óraði fyrir,“ segir Ragnar.
„Síminn er að selja mikilvæga innviði Mílu á 78 milljarða til fjárfestingasjóðsins Ardian. Nær ómögulegt er að komast að því hverjir nákvæmlega eiga þennan franska fjárfestingasjóð. Samhliða sölunni er gerður 20 ára leigusamningur milli Mílu og Símans, samningur sem ómögulegt er að segja til um hvaða áhrif hefur á stöðu Símans til lengri tíma, hvað þá neytendur.“
Hann segir að með flettingum á vefnum sjái hann hvað hangi á spýtunni. Til dæmis að Sýn og Nova hafi nýverið selt innviði er tengjast 5G uppbyggingu til Digital Colony. „Þá kemur stóra spurningin. Tengjast þessir fjárfestingasjóðir, sem eru á góðri leið með að eignast fjarskiptainnviði Íslands. Svarið er Já,“ segir Ragnar. „Ef þú setur Digital Colony og Ardian inn á Google leit kemur í ljós að sjóðirnir hafa unnið náið saman í kaupum á fjárskiptainnviðum sem teygja sig til norður Ameríku og Evrópu. Digital Colony og Ardian tengjast í kringum kaupin á Zayo Group LLC. Einnig má fletta upp fleiri áhugaverðum tengslum og viðskiptasamböndum þessara sjóða.“
Báðir þessir aðilar eru með leigusamning til 20 ára. Eftir standa stórar spurningar. Hvaða stöðu eru íslenskra neytendur í þegar tengdir aðilar hafa með kaupum á mikilvægum fjarskiptainnviðum íslands tryggt 20 ára samninga við alla fjarskiptarisa Íslands? Hver verður samkeppnin? Og trúir því einhver að sjóðir sem starfa náið saman á öðrum mörkuðum fari að keppa á litla Íslandi?,“ spyr Ragnar.
„Hvernig standa þessi fyrirtæki eftir viðskiptin þegar þau hafa verið tæmd að innan og læst inni í 20 ára viðskiptasambandi við fjárfestingasjóði sem engin veit hver raunverulega á. Við hljótum að biðla til stjórnvalda, samkeppniseftirlitsins, lífeyrissjóðanna og eftirlitsaðila að hefja opinbera rannsókn á þessum viðskiptum og stoppa þau af á meðan hún stendur yfir.“