Ragnar Þór: „Það sem kemur í ljós er sláandi“

„Það sem kemur í ljós er sláandi,“ segir Ragnar Þór Ingólfs­son, for­maður VR, sem lýsir yfir miklum á­hyggjum af mögu­legum vaxta­hækkunum á komandi mánuðum.

„Bankarnir hafa tekið að stærstum hluta á­vinninginn af lækkun banka­skatts og lækkun stýri­vaxta. Með því að auka á­lagningu sína um mörg hundruð prósent á lánum til ein­stak­linga og fyrir­tækja. Nú tala bankarnir um að hækka vexti enn frekar og fylgja þannig for­dæmi Ís­lands­banka sem tók á­kvörðun um að vaxta­okur og græðgi yrði þeirra fram­lag til sam­fé­lagsins á tímum Co­vid,“ segir Ragnar á Face­book-síðu sinni þar sem hann deilir pistli sem hann skrifaði um málið á Vísi.

Sjá einnig: Vilhjálmur: Ertu ekki örugg­lega búin að endur­fjár­magna hús­næðis­lánið þitt?

Í pistlinum spyr hann hvort nauð­syn­legt sé fyrir bankana að hækka vexti á í­búða­lánum. „Við nánari skoðun og saman­burð á þróun vaxta­á­lags bankanna, í saman­burði við fjár­mögnunar­kostnað, sést að svo er alls ekki,“ segir hann og bætir við að bankarnir hafi í raun marg­faldað á­lagningu sína síðustu ár.

„Svo mikið að það nemur mörg hundruð prósentum. Þrátt fyrir lækkun banka­skatts hafa lægri vextir og lægri fjár­mögnunar­kostnaður bankanna að mestu farið í vasa þeirra sjálfra. Það má því á­lykta sem svo bankarnir hafa tekið til sín mesta á­vinning vaxta­lækkana síðustu ára,“ segir hann og veltir fyrir sér sam­fé­lags­legri á­byrgð og eig­enda­stefnu stjórn­valda.

„Hvernig má það vera í ár­ferði sem nú er þar sem ó­vissa er mikil, og tekju­fall ein­stak­linga og fyrir­tækja án for­dæma, að bankarnir fari fram með þessum hætti? Þarf græðgin og hagnaðar­drifin eig­enda­stefna alltaf að vera í for­grunni? Alveg sama hvernig árar í sam­fé­laginu?“

Ragnar spyr hvort til of mikils væri mælst að bankarnir og eig­endur þeirra, ríkið þar á meðal, gæfu þau fyrir­mæli að vegna stöðunnar, sem er þröng hjá mörgum, sé nauð­syn­legt að ýta arð­semis­sjónar­miðum til hliðar og dusta rykið af sam­fé­lags­legu á­byrgðinni.

„Væri það heims­endir fyrir fjár­mála­kerfið að vera rekið á núlli, eða tapi, í eitt til tvö ár á meðan varnar­bar­áttan og við­spyrnan á sér stað?,“ spyr Ragnar sem birtir síðan fjöl­mörg gröf máli sínu til stuðnings.

Það sem kemur í ljós er sláandi. Bankarnir hafa tekið að stærstum hluta ávinninginn af lækkun bankaskatts og lækkun...

Posted by Ragnar Þór Ingólfsson on Föstudagur, 13. nóvember 2020