Ragnar Þór sýnir sturlunina á leigu­markaði – Sjáðu sam­bæri­legar íbúðir í saman­burði

„Árum saman höfum við reynt að koma stjórn­völdum í skilning um þessa stöðu en einungis fengið starfs­hóp eftir starfs­hóp og nefnd eftir nefnd en engar að­­gerðir eða efndir,“ segir Ragnar Þór Ingólfs­­son, for­­maður VR, í pistli á Face­book, en Fréttablaðið greinir frá.

Ragnar birtir skjá­­skot af aug­­lýsingu sem finna má á fast­­eigna­vef mbl.is, en þar er boðin í út­­leigu þriggja her­bergja íbúð á 375 þúsund krónur á mánuði. Bendir Ragnar á að það sé tölu­vert yfir lægstu launa­töxtum sem voru fyrir skatt rúmar 367 þúsund krónur fyrir hækkanir síðustu kjara­­samninga. Ragnar gerir leigu­­markaðinn al­­mennt að um­­tals­efni í færslu sinni og bendir á að Bjarg Í­búða­­fé­lag, sjálfs­­eignar­­stofnun um hús­­næði sem er rekin án hagnaðar­­mark­miða, sé með sam­bæri­­lega íbúð til leigu við Tanga­bryggju á 166 þúsund krónur. Frá því verði dragast húsa­­leigu­bætur.

„Leigu­­fé­lagið Alma hefur borið fyrir sig markaðinn þegar tug­­þúsunda hækkunum, um­­­fram vísi­­tölu, er hellt yfir við­­skipta­vini þeirra með reglu­­legu milli­­bili og er við­búið að þetta nýja við­mið markaðarins á Tanga­bryggju verði notað við næstu 12 mánaða endur­­­skoðun þeirra þegar við­­skipta­vinir þeirra fá “boð” um endur­­nýjun á leigu­­samningi.“

Ragnar segir að Bjarg í­búða­­fé­lag, sem stofnað var af ASÍ og BSRB, hafi verið að skila af sér dýrustu blokk sem fé­lagið hefur byggt við Maríu­­götu í Garða­bæ. Ragnar Þór gagn­rýnir að­­gerða­­leysi stjórn­valda í hús­­næðis­­málum og vandar stjórn­völdum ekki kveðjurnar í pistli sínum.

„Árum saman hefur stefnt í eina al­var­­legustu hús­­næðiskreppu síðari ára. Árum saman höfum við reynt að koma á leigu­bremsu. Árum saman höfum við bent á að helsti drif­­kraftur verð­bólgu er fram­­boðs­­skortur á hús­­næði. Árum saman höfum við reynt að fá líf­eyris­­sjóði til að fjár­­festa í upp­­byggingu á hús­­næðis­­markaði. Árum saman höfum við reynt að koma stjórn­völdum í skilning um þessa stöðu en einungis fengið starfs­hóp eftir starfs­hóp og nefnd eftir nefnd en engar að­­gerðir eða efndir.“

Ragnar segir stöðuna í dag vera þannig að hús­­næðis­­markaðurinn er botn­frosinn. Fram­­kvæmdir dragist saman og það stefni í al­­gjört ó­­efni.

„Hátt vaxta­stig og að­­gerðir Seðla­bankans hafa þannig lokað á eftir­­­spurnar­hliðina, og fram­­boðs­hliðin er að lokast líka. Á meðan hefur ríkis­­stjórnin mestar á­hyggjur af stöðunni á vinnu­­markaði og hvernig helst sé hægt að beisla hann með lögum. Og hvernig kjara­­samningar, en þar hækkuðu laun um 35.000 til 66.000 kr. á mánuði, séu nú helsta ógnin við stöðug­­leika. Þetta er það eina sem þau hafa til málanna að leggja á meðan þing­farar­­kaupið, sem er Kr. 1.345.582.- og hefur hækkað um 582.642 í krónum talið frá árinu 2016, mun að öllum líkindum hækka um að lág­­marki 115.000 kr. við næstu endur­­­skoðun í júlí ef við á­ætlum hver 12 mánaða launa­­vísi­tala verði þá.“

Ragnar Þór endar pistil sinn svo á að senda Bjarna Bene­dikts­­syni, fjár­­mála­ráð­herra tóninn.

„Fjár­­mála­ráð­herra telur okkur aldrei hafa haft það betra á meðan bankarnir öskra eftir enn hærri vöxtum svo þeir geti gengið á eigið fé al­­mennings sem myndast hefur í hús­­næði þeirra. Staðan versnar bara og versnar. Þetta er vit­skert ver­öld sem við búum í.“