Ragnar Þór svarar: Ráða mjög vel við komandi launahækkanir og gott betur

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að miðað við hagnað fyrirtækja á borð við Festi þá ættu fyrirtækin vel að gera ráðið við launahækkanir á næsta ári. Í grein sem hann skrifar á Vísi svarar hann Ásgeiri Jónssyni, Eggerti Kristóferssyni forstjóra Festis, Guðrúnu Hafsteinsdóttur, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, og fleirum sem hafa slegið launahækkanir út af borðinu.

„Staðreyndir sem virðast flækjast mikið fyrir nýkjörnum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins og stjórnendum fyrirtækja sem og Seðlabankastjóra, Viðskiptaráði og SA,” segir Ragnar. Hann segir að skuldir fyrirtækja, hækkandi húsnæðisverð og hækkun hrávöru vera að baki verðbólgu, ekki launahækkanir.

„Þrátt fyrir það sem lýst er að ofan glymja í fréttum að komandi launahækkanir mun sliga fyrirtækin hér á landi! Þennan söng höfum við oft heyrt áður og var hann nokkuð hávær fyrir síðustu kjarasamningsbundnu launhækkanir.“

Ragnar bendir á að það hafi komið fram að samningsbundnar launahækkanir muni auka launakostnaðinn hjá Festi hf., sem rekur Krónan, N1, Elko, um 9%. „Og má skilja að það hafi ekki efni á að hækka launin á næsta ári án þess að hækka vöruverð eða að segja upp starfsfólki. Þó öðru máli gegni um bónusgreiðslur og ofurlaun til æðstu stjórnenda,“ segir Ragnar. „9% hærri launkostnaður fyrir Festi er hækkun á launakostnaði um 910 m.kr. á tólf mánaða tímabili.“

Hann segir að hagnaður Festis hf. fyrstu níu mánuði þessa árs hafi verið 3,6 milljarðar á meðan hann var 1,7 milljarður árið á undan og árið 2019 var hann um 2 milljarðar. „Hagnaður hefur aukist um 1,9 milljarða milli ára eða um 106% frá árinu á 2020 og frá 2019 hefur hagnaður aukist um 73% eða um 1,6 milljarða. Eins og sést á þessum tölum hefur Festi ráðið vel við þær launahækkanir sem hafa orðið á þessu ári og gert gott betur,“ segir hann.

„Það verður spennandi að fara í komandi kjaraviðræður þegar fyrirtækjum eins og Festi hf. gengur jafnvel og raun ber vitni.“