Starfsfólk í hinum ýmsu verslunum hefur verið sýndur dónaskapur af sumum viðskiptavinum undanfarið. Er þetta oft vegna hluta sem starfsfólkið hefur ekkert um að segja. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir í samtali við Hringbraut og Fréttablaðið að margt starfsfólk sé áhyggjufullt vegna ástandsins í samfélaginu sem rekja má til COVID-19 eða kóróna-veirunnar. Formaðurinn segir starfsmenn leggja heilsu sína undir og álagið í stórmörkuðum sé sambærilegt við góða jólavertíð.
Ragnar Þór vakti fyrst athygli á ástandinu á Facebook-síðu sinni þar sem hann segir VR hafa fengið fjölmargar kvartanir. Ragnar Þór segir:
„Nokkuð hefur borið á því að starfsfólki verslana sé sýndur dónaskapur. VR hefur borist töluvert af kvörtunum þess efnis. Það er mikilvægt að fólk hafi í huga að allir eru að gera sitt besta í að halda samfélaginu gangandi.“
Í samtali við Hringbraut segir Ragnar Þór þegar hann er beðinn um að lýsa ástandinu í verslunum nánar:
„Þetta lýsir sér í almennum pirring þar sem viðskiptavinir hreyta ónotum í starfsfólk vegna hluta sem lítið er hægt að gera við. Sem betur fer eru flestir sem hrósa en það er bara mjög sárt að vita til þess að fólk sem leggur heilsu sína undir og gerir sitt allra besta skuli sitja undir pirring eða öðrum dónaskap þar sem álag er búið að vera sambærilegt og í góðri jólavertíð hjá t.d. stórmörkuðum.“
Þá segir Ragnar Þór á Facebook að eðlilegt sé að vera áhyggjufullur í þeirri óvissu sem nú ríkir en það skili sér bæði í þreytu og streitu og þá geti verið stutt í pirring. Ragnar segir:
„Við megum ekki undir nokkrum kringumstæðum láta það bitna á framlínufólki í verslunum sem leggur heilsu sína undir í að sjá okkur fyrir nauðsynjavörum og annarri þjónustu sem við teljum sjálfsagða á tímum sem þessum. Starfsfólk í verslun er í hópi þeirra sem halda samfélaginu gangandi.“
Ragnar Þór bendir á að mikilvægt sé að Íslendingar komi vel fram við hvorn annan og standi saman á þessum erfiðu tímum.
Verum dugleg að hrósa,“ segir Ragnar Þór og skorar á fólk að koma skilaboðunum áleiðis. Hann segir einfaldlega:
„Vinsamlega deilið.“