„Er það að gerast? Ætla stjórnvöld virkilega að hefja sama leik og gert var eftir hrunið 2008 þar sem neytendur og heimilin voru ekki bara undanskilin í aðgerðum heldur voru lög sett til að draga úr réttarstöðu neytenda og heimila.“
Þetta segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, í pistli á Facebook-síðu sinni.
Tilefnið er viðtal RÚVí gær við Breka Karlsson, formann Neytendasamtakanna, sem sagði að ráðist væri að neytendum úr öllum áttum. Nefndi hann sem dæmi að ferðaskrifstofur neituðu að endurgreiða ferðir sem ekki væru farnar og líkamsræktarstöðvar, tónlistar- og myndlistaskólar rukki fyrir tíma sem ekki er hægt að nota.
Breki gagnrýndi einnig frumvarp um pakkaferðir sem nú er til meðferðar í atvinnuveganefnd Alþingis. Í frétt RÚV er bent á umsögn Neytendasamtakanna um frumvarpið þar sem bent er á að lögin eigi að vera afturvirk til 15. mars og síðan eigi að taka réttindi af neytendum. Í dag kveði lögin á um að neytendur fái endurgreitt sé ferð ekki farin.
„Þetta er mjög stutt frumvarp einar sjö til átta línur en alveg óhemjuskrítið og í rauninni stangast á við stjórnarskrá,“ sagði Breki og bætti við að ferðaskrifstofur væru að nýta sér þá stöðu sem nú er uppi og bíða með að endurgreiða neytendum það sem þeim ber að fá.
Ragnar Þór er ósáttur við þessa stöðu og spyr hann hvort verið sé að draga úr réttarstöðu neytenda og heimila.
„Þetta var meðal annars gert með fordæmalausum hætti, með afturvirkum lögum, sem kennd eru við Árna Pál. Ef það er vottur af sómakennd ríkisstjórnarinnar eða einhverri mótstöðu hjá stjórnarandstöðunni þá verður komið í veg fyrir afturvirkar lagasetningar á kostnað neytenda.“