Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segist hafa verið að fá af því fréttir að undanförnu að þekkt leigufélag hér á landi sé aftur farið að bjóða viðskiptavinum sínum upp á endurnýjun leigusamninga með tugþúsunda hækkun, umfram vísitöluhækkanir.
Ragnar Þór segir frá þessu í færslu á Facebook-síðu sinni. Hann bætir við að þær útskýringar sem hann hefur heyrt haldi ekki vatni.
„Ein af útskýringum þeirra er að fasteignaverð hafi hækkað svo mikið. En sama leigufélag er auðvitað ekki að kaupa fasteignir sem það á nú þegar og sama leigufélag hefur ekki skilað krónu af miklum vaxtalækkunum síðustu ára í lækkaðri leigu. Hækkun markaðsverðs á húsnæði ætti einnig að skila sér í lægra veðhlutfalli (skuldahlutfalli) og hagkvæmari fjármögnun,“ segir hann.
Ragnar Þór segir að nú þegar hafi virðisaukning upp á tugi prósenta skilað eigendum leigufélaga gríðarlegum hagnaði. Og hagkvæmari fjármögnun skilað sér óskert í vasa sömu eigenda. Einnig kveðst hann hafa upplýsingar um að viðhaldi eigna sem félagið leigir út sé stórlega ábótavant.
„Við þessu þarf auðvitað að bregðast og vil ég biðja alla þá sem hafa fengið slíkar tilkynningar að senda mér póst á [email protected]. Fullum trúnaði heitið!
Ragnar rifjar upp að VR hafi í febrúar 2019 hótað að hætta viðskiptum við ákveðið fjármálafyrirtæki sem tengdist leigufélagi sem stundaði þessa viðskiptahætti árum saman.
„Úr varð að félagið hætti þeirri háttsemi og dró tilkynntar hækkanir til baka og bauð viðskiptavinum sínum langtíma leigusamninga. Nú virðist siðleysið og græðgin vera farin að banka uppá hjá stóru leigufélögunum á ný og hafa sjálfsagt augastað á auknum húsaleigustuðningi stjórnvalda sem þau sjá fyrir sér sem tekjulind til þeirra frekar en fólks í neyð. Þetta þarf einfaldlega að stoppa og það er hægt því eigendur margra þessara leigufélaga hafa hag af öðrum viðskiptum en bara okurleigu.“
Í athugasemdum við færsluna segist Ragnar ekki vilja nafngreina leigufélagið sem um ræðir, ekki að sinni að minnsta kosti. Vill hann safna frekari upplýsingum um málið og biðlar hann því til þeirra sem kannast við það að hafa samband.