Ragnar Þór kemur unga fólkinu til varnar: „Ég fullyrði að börn hafa sjaldan verið betur gerð“

Ragnar Þór Pétursson, kennari og fyrrverandi formaður Kennarasambands Íslands, segir að margir undrist virðingarleysi barna gagnvart öðrum börnum.

„Gott og vel. En hvað með okkur hin fullorðnu? Hverjum dettur í hug að birta mynd og nafn barns í fjölmiðli daginn eftir sjálfsvígstilraun? Hvaðan kemur síðan fólkið sem krefst nafn- og myndbirtingar á 12 ára gömlum börnum til að hakka þau í fordæmingarhakkavél samfélagsmiðla fullorðna fólksins,“ segir Ragnar Þór í pistli sem hann birti á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi og hefur vakið talsverða athygli.

Sjá einnig: Sigurþóra allt annað en sátt við fréttaflutning af eineltismálinu í Hafnarfirði

„Börn og ungmenni eru tætt í sundur í fjölmiðlum nánast upp á hvern einasta dag, af fullorðnu fólki, sem úr hásætum eigin hræsni og valkvæðs minnis telur ungdóminn aldrei hafa verið verri. Ólæsan, illgjarnan og óstöðugan.“

Ragnar bendir á að ungt fólk í dag hafi fæðst inn í hrun. Þegar það átti að taka út félagsþroska sat það í einangrun vegna drepsóttar. Í stað bjartsýni og trúar á framtíð hafi þau fengið í arf mengaðan heim í fjörbrotum illsku og ófriðar.

Sjá einnig: Tók saman það sem fullorðna fólkið hafði að segja vegna eineltismálsins | „Ég spyr aftur. Hvernig gengur okkur?“

„Í stað umhyggju mætir því almenn og ítrekuð fordæming. Í stað verndar frá hinum fullorðnu er herjað á þau með markaðssetningu, allt frá dýrum fötum og tækjum til veips, nikótínpúða og orkudrykkja,“ segir hann.

Ragnar segir að vissulega sé þjáning og myrkur í heimi ungs fólks í heiminum í dag.

„En ég fullyrði samt að börn hafa sjaldan verið betur gerð - eða vænlegra fólk. En þau eru eins og fuglar sem berjast um í olíubrák og samfélag fullorðinna sem leyfir stöðugar árásir á börn og sinnir ekki lágmarksvernd þeirra er eins og Exxon Valdez á fullri ferð með göt á öllum tönkum.“