Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hvetur íslensk stjórnvöld til að spyrja einfaldlega þjóðina til hvaða aðgerða við viljum grípa til við landamæraskimun og eftirlit.
Ragnar segist vera hugsi yfir þeirri stöðu sem er uppi en kveðst um leið vona að hertar sóttvarnaraðgerðir beri tilætlaðan árangur og fjórða bylgja faraldursins verði drepin í fæðingu.
„Nú hefur ríkisstjórnin, í höfðu samráði við hagsmunaaðila, ákveðið að opna landamærin enn frekar. Sömu hagsmunaaðilar og segja stöðuna sem nú er komin upp, þjóðinni að kenna.
Hverra hagsmuna eru þessir hagsmunaaðilar að gæta?“
Ragnar segist hafa talið að íslenskt ferðasumar væri til þess fallið að bjarga því sem bjarga mætti, fram yfir bólusetningar, í ljósi þess að allt virðist vera í uppnámi í löndunum í kringum okkur.
„Eða snýst þetta orðið um stöðu stjórnenda stærstu ferðaþjónustufyrirtækjanna og óraunhæfar, allt að því sturlaðar, áætlanir þeirra um að bjarga "ferðamannasumrinu" hvað sem það kostar?“
Ragnar stingur upp á því að þjóðin verði spurð eftirfarandi þriggja spurninga:
- Viljum við hertari aðgerðir?
- Viljum við óbreytt ástand?
- Viljum við opna enn frekar?
Um leið og ég vona að hertar sóttvarnaraðgerðir beri tilætlaðan árangur og við fáum ekki yfir okkur fjórðu bylgjuna er...
Posted by Ragnar Þór Ingólfsson on Fimmtudagur, 25. mars 2021