Ragnar Þór fengið nóg: „Dapurlegt og ömurlegt“ – Skuggalegt lið veður á skítugum skónum um almannasjóði

„Það er ekki öll vitleysan eins. Nú á að breyta lögum um fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða svo þeir geti tekið meiri áhættu og liðka þannig fyrir enn áhættumeiri fjárfestingum m.a. í Icelandair? Hvaða hagsmunaöfl eru (raunverulega) á bak við þessa tillögu?“

Þessari spurningu varpar Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, fram á Facebook-síðu sinni en tilefnið er frumvarp meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis sem myndi heimila lífeyrissjóðum að taka þátt í hlutafjárútboði Icelandair. Í gær var samþykkt að taka frumvarpið á dagskrá.

„Til að útskýra frekar þá snýst málið um að heimila lífeyrissjóðunum að fjárfesta í afleiðum sem auka áhættu sjóðanna en slíkt hefur verið bannað með lögum hingað til. Og ekki að ástæðulausu,“ segir Ragnar og segir langt gengið til að komast dýpra í djúpa vasa eftirlaunasjóða almennings.

„Einnig hefur Seðlabankinn haldið lífeyrissjóðunum í höftum á meðan aðrir fjárfestar fara út úr krónunni. Án þess að hafa til þess lagalega heimild er virðist. Það er í raun ótrúlegt að hugsa til þess að sömu stjórnmálamenn og Seðlabanki fóru á taugum þegar stjórn VR, skipunaraðili í stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna, hafði opinbera skoðun á því hvort fjárfesta ætti í félagi sem braut gegn leikreglum vinnumarkaðarins og þannig gegn fjárfestingarstefnu sjóðsins okkar. Og vorum svo sökuð um „skugga“ stjórnun með því að álykta um málið með opinberum hætti.“

Ragnar Þór segir að ofangreind inngrip og afskipti stjórnmálamanna og Seðlabankans séu mun alvarlegri en skoðanir forystufólks í verkalýðshreyfingunni.

„Það sem er að raungerast er ákveðið form spillingar sem felst í mögulegum skaða sem fyrirliggjandi lagabreytingar geta haft í för með sér og svo grófri mismunun á milli fjárfesta þar sem almenningur (í gegnum lífeyrissjóðina) er læstur inni í krónu á meðan aðrir komast út. Þetta hefur alvarleg og neikvæð áhrif á stöðu lífeyrissjóðanna og fjárfestingarkosti þeirra,“ segir Ragnar.

Hann kveðst vona að þeir þingmenn sem ekki eru litaðir af sérhagsmunum eða meðvirkni gagnvart spillingu – ef einhverjir eru – sjái til þess að þessar breytingar á fjárfestingarheimildum lífeyrissjóða fari ekki í gegnum þingið.

„Ég skora einnig á stjórnir lífeyrissjóða að beita sér fyrir því að ofangreindar lagabreytingar nái ekki fram að ganga. Og setja það sem skilyrði fyrir þátttöku í hlutafjárútboði Icelandair að ný stjórn og stjórnendur verði settir yfir félagið. Ef sjóðirnir ætla svo á annað borð að taka þátt ættu þeir að takmarka áhættuna með því að skrá sig fyrir, í mesta lagi, helming bréfa til að fá úr því skorið hvort þetta snúist eins og venjulega um að láta almenning blæða fyrir bullið eða hvort almennir fjárfestar séu jafn auðtrúa á áætlanir stjórnenda Icelandair.“

Ragnar Þór segir „dapurlegt og í raun ömurlegt að horfa upp á leikritin sem sett eru upp“ til að afvegaleiða umræðuna. „Hvað má og hvað má ekki og hverjir mega? Stjórn VR gegnir mikilvægu eftirlitshlutverki gagnvart sjóðnum sem við skipum helming stjórnarsæta í. Svona eins og hálfgerðu móðurfélagshlutverki.“

Hann segir að valdamikil öfl í íslensku samfélagi hafi sett það í óskráðar leikreglur að hvorki stjórn VR né almennir sjóðfélagar megi hafa skoðanir á einstaka fjárfestingum lífeyrissjóða. Allar tilraunir til eftirlits og gagnrýnna spurninga séu hrópaðar sem tortryggileg skuggastjórnun.

„Á meðan vaða sérhagsmunir, atvinnulífið, stjórnmálin, embættismenn og annað skuggalegt lið um almannasjóði á skítugum skónum með klapplið eftirlitsstofnana eins og skugga á eftir sér,“ segir Ragnar Þór sem klikkir út með þessum orðum: „Vinsamlega deildu ef þú hefur fengið nóg af rányrkjunni og spillingunni í íslensku samfélagi.“