Ragnar Þór biður viðskiptavini verslana um að hafa þetta í huga

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hvetur viðskiptavini verslana og annarra þjónustuaðila að hafa nokkur atriði í huga nú þegar þriðja bylgja kórónuveirufaraldursins er skollin á af fullum þunga.

„Tveggja metra reglan hefur tekið gildi á ný og viðskiptavinum verslana er skylt að bera grímur ef ekki er hægt að tryggja að minnsta kosti tveggja metra fjarlægðarmörk. Þó aðgerðirnar eigi aðeins við um höfuðborgarsvæðið eins og staðan er í dag þá væri það sterkur leikur hjá landsmönnum öllum að herða á eigin sóttvörnum,“ segir hann í grein á vef VR í dag.

„Ég vil því biðla til allra viðskiptavina verslana og annarra þjónustuaðila að gæta ýtrustu varkárni og fylgja í hvívetna þeim reglum sem hafa verið settar, bæði fyrir þeirra eigin hag og þeirra sem standa vaktina fyrir okkur hin í verslunum og þjónustu, enda verður illa komið fyrir okkar samfélagi ef við getum ekki verslað nauðsynjar. Þá er einnig mikilvægt að atvinnurekendur tryggi öryggi í starfsumhverfi verslunarfólks og fólks í þjónustu. Nú sem aldrei fyrr er brýnt að við verndum verslunarfólkið okkar!“

Ragnar Þór deilir greininni á eigin Facebook-síðu og hvetur landsmenn til að gera slíkt hið sama, enda á efni pistilsins erindi við flesta landsmenn.