Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR segir með ólíkindum hvernig fyrirtæki jafnt sem opinberar stofnanir hafa misnotað sér úrræði stjórnvalda á síðustu vikum og mánuðum. Sum þeirra hafi vissulega séð að sér – og skilað fengnum, en önnur þeirra – og dæmin séu fjölmörg, hafi notfært sér leiðir sem klárlega fari á svig við reglur.
Hann nefnir þar dæmi um fyrirtæki sem hafi notað sér fiskvinnsluleiðina svokölluðu, en hún felur í sér að koma starfsfólki þeirra strax á atvinnuleysisbætur, án nokkurs uppsagnarfrests, en leiðin hafi á sínum tíma þótt eðlileg vegna ófyrirséðs aflabrests í sjávarplássum landsins. Nú noti fyrirtæki sér þessa leið eins og ekkert sé eðlilegra, svo og opinberar stofnanir á borð við Borgarleikhúsið, bendir Ragnar Þór á, en hann segir tilkynningum af þessu tagi rigna yfir skrifstofu VR.
Hann segist óttast mjög kröfu atvinnulífsins um að starfsfólk afsali sér áunnum réttindum á næstu vikum og mánuðum – og taki á sig mikla lækkun launa til viðbótar við þá 20% kjararýrnun sem lækkun gengisins hafi kallað yfir launafólk. Nú sé kallað eftir verktökuanda lággjaldaflugfélaganna þar sem réttindi og vinnutími séu afstæð, svo og láglaunapíningu alþjóðlegra risa á borð við Amazon og Apple sem vaði yfir vinnumarkaðinn í öllum heimsálfum án þess svo mikið að greiða nokkuð til samneyslunnar. Hér sé nýja víglínan komin; matarverð hækki, launin lækki og réttindin verði tekin af fólki. Og varðstaðan snúist um þetta.