Ragnar þakk­látur þeim sem bera svona ör: „Fólkið sem deyr ber ör eins og þetta á myndinni“

„Ef þú ert með svona á upp­hand­leggnum eða bakinu, takk!“ Þetta segir Ragnar Þór Péturs­son, for­maður Kennara­sam­bands Ís­lands, í pistli á Face­book-síðu sinni sem vakið hefur mikla at­hygli.

Í pistlinum nefnir Ragnar að hann sé af fyrstu kyn­slóðinni sem ekki þurfti að bólu­setja við bólu­sótt. Bendir hann á að sjúk­dómurinn sé enn ó­læknandi með öðru en bólu­setningu en út­dauður ef honum verður ekki hleypt af stað aftur, til dæmis í lífeinda­hernaði.

„Þriðji hver sem sýktist dó, hlut­fallið var hærra hjá börnum, og sjúk­dómurinn var með okkur a.m.k. frá dögum faraóanna (og lík­lega í meira en 10 þúsund ár) til ársins 1977 þegar síðasti ein­stak­lingurinn veiktist.“

Ragnar minnist á að um miðja síðustu öld hafi um 50 milljón smit greinst á ári og árið 1967 hafi á­líka margir dáið úr bólu­sótt og dáið hafa úr CO­VID-19 á þessu ári. En á síðasta fjórðungi 20. Aldarinnar og fyrsta fimmtungi þeirrar tuttugustu og fyrstu hafi ekki einn einasti dáið.

„All­stór hluti þjóðarinnar ber þess merki að hafa tekið þátt í að út­rýma sjúk­dómnum til að vernda af­kom­endur sína og sjálfa sig. Það er tákn­rænt að örið sést vegna við­bragða ó­næmis­kerfisins, allir þræðirnir í húðinni uxu á þessum stutta tíma í sömu átt, ó­líkt húðinni í kring þar sem þeir snúa á alla kanta. Þannig hegðar líka á­byrgt sam­fé­lag sér, við snúum okkur öll eins í dá­litla stund til að vernda okkur sjálf og hvert annað,“ segir Ragnar sem endar pistilinn á þessum orðum:

„Verum stolt af fórnunum sem við þurfum að færa. Hegðum okkur nú á­byrgt á að­ventunni og á vor­mánuðum og förum var­lega, bólu­setjum okkur þegar við getum. Ein bylgja enn getur og mun kosta manns­líf. Það er nokkuð víst að fólkið sem deyr ber ör eins og þetta á myndinni. Það á betra skilið frá okkur. Reynum að gefa því þá jóla­gjöf að lág­marka hættuna.“

Ef þú ert með svona á upphandleggnum eða bakinu, takk! Ég er af fyrstu kynslóðinni sem ekki þurfti að bólusetja við...

Posted by Ragnar Þór Pétursson on Mánudagur, 7. desember 2020