„Það er orðið ljóst að uppgjör þjóðarinnar við spillinguna er handan við hornið,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, á Facebook-síðu sinni.
Þar deilir hann pistli Þórðar Snæs Júlíussonar, ritstjóra Kjarnans, um viðtal Stundarinnar við Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra sem vakið hefur mikla athygli. Í viðtalinu sagði Ásgeir að Íslandi væri að miklu leyti stjórnað af hagsmunahópum og það væri meiriháttar mál að lenda upp á kant við þá.
„Grímurnar féllu og fólkið er að rísa upp. Alþingiskosningarnar verða stóra prófið um það hvort virðingin, réttlætið og frelsið sé yfirsterkari en þrælslundin og meðvirknin,“ segir Ragnar Þór.
Í leiðara sínum segir Ragnar að viðtalið við Ásgeir sé eitt það mikilvægasta sem birst hefur lengi á Íslandi. Hann segir að í yfirlýsingu sinni um að Íslandi væri stjórnað af hagsmunahópum væri hann að enduróma að hluta orð sem annar áhrifamaður á Íslandi, Styrmir Gunnarsson, sagði í viðtali við rannsóknarnefnd Alþingis eftir efnahagshrunið.
„Þetta er ógeðslegt þjóðfélag, þetta er allt ógeðslegt. Það eru engin prinsipp, það eru engar hugsjónir. Það er bara tækifærismennska, valdabarátta,“ sagði Styrmir.
Þórður bendir á að ekki sé hægt að afskrifa Ásgeir sem vinstrivilling eða öfundarmann. Þar fari maður sem sér allt sem hann vill í kerfinu, maður sem er í nær daglegum samskiptum við flest valdamesta fólkið í landinu.
„Með orðum sínum staðfestir Ásgeir það sem hagtölur og önnur opinber gögn sýna svart á hvítu, og flestir sem kynna sér sjá: Að á Íslandi hefur orðið til nokkurs konar ofurstétt,“ segir Þórður meðal annars í leiðara sínum sem má lesa í heild sinni hér.