„Þetta kallast klíkustjórnun í mínum bókum. Ég hefði kannski frekar átt að nota orðið spilling og biðst afsökunar á því,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, í pistli á Facebook-síðu sinni.
Þar svarar hann Maríu Stefánsdóttur, sölustjóra Icelandair, sem skrifaði pistil um málefni Icelandair í gær. Pistill Maríu snerist öðrum þræði um stöðu félagsins og orð Boga Nils Bogasonar sem sagði í bréfi til starfsmanna um helgina að helsta fyrirstaða þess að hægt væri að bjarga Icelandair frá falli væru starfsmennirnir. María vildi meina að orð hans hefðu verið mistúlkuð. Hún gagnrýndi svo Ragnar Þór sem gerði einmitt ummæli Boga að umtalsefni um helgina.
Óábyrgt og ósanngjarnt
„Í þessu ljósi þótti mér, sem félagsmanni í VR, ömurlegt að lesa um árásir Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns félagsins, á stjórnendur Icelandair og hvernig hann kýs að snúa út úr orðum forstjórans Ragnar Þór talar um „stjórnendaklíku” Icelandair og veltir fyrir sér hvort ekki væri rétt á þessum tímapunkti að skipta út stjórnendum. Það blasir við hversu óábyrg og ósanngjörn þessi orð eru,“ sagði María meðal annars.
Í pistlinum sem Ragnar Þór skrifaði í morgun segir hann Maríu ekki færa nein rök gegn því sem hann skrifaði um feilspor stjórnenda fyrirtækisins í gegnum tíðina. Segir hann Maríu telja enga aðra leið í stöðunni en að skerða kjör starfsfólks því ekki taki betra við ef félagið verður tekið yfir. Bendir Ragnar á í framhjáhlaupi að launakostnaður Icelandair, í alþjóðlegum samanburði, hafi lækkað um 20% frá áramótum vegna veikingar krónunnar.
Kjör og kjarasamningar virtir
Ragnar segir enn fremur að umræðan snúist ekki eingöngu um Icelandair heldur frekar viðhorf æðstu stjórnenda í atvinnulífinu. Þeir virðist ætla að nýta sér kreppuna sem nú er til að kúga fram launalækkanir og afsal mikilvægra réttinda sem tekið hefur áratugi að ná.
„Ég tel fullvíst að félaginu verði bjargað. Ef ríkið kemur þar að málum, sem allar líkur eru á, með mögulegri aðkomu lífeyrissjóða munum við sem skattgreiðendur og eigendur lífeyrissjóðanna aldrei sætta okkur við annað en að kjör og kjarasamningar starfsfólksins verði að fullu virt svo sómi sé af.“
Ragnar útskýrir svo hvað hann átti við þegar hann notaði orðið „stjórnendaklíka“ í pistli sínum um helgina. „Átti ég t.d. við þegar Björgólfur Jóhannsson steig til hliðar til að axla ábyrgð á slæmri stöðu félagsins, á mesta góðæristíma flugsögunnar, og rétti kyndilinn yfir í vinstri höndina sem núverandi forstjóri var á þeim tíma,“ segir hann og nefnir fleiri dæmi.
„Þetta kallast klíkustjórnun í mínum bókum. Ég hefði kannski frekar átt að nota orðið spilling og biðst afsökunar á því. Ég gæti svo skrifað sérstakan pistil um klíkuna í kringum æðstu stjórnendur ef þess er sérstaklega óskað og færa frekari rök fyrir máli mínu.“
Tekur undir áhyggjur Maríu
Ragnar segir samkennd, einlægni og áhyggjur yfir stöðu starfsfólksins skína í gegn í pistli Maríu. Undir þær áhyggjur tekur hann heilshugar. „Hún hefur eðlilega mikla samkennd og stolt með fyrirtækinu sem hún starfar hjá og skil ég þá afstöðu mjög vel enda þekki ég mikið af frábæru starfsfólki sem vinnur hjá Icelandair og sárnar þegar vinnustaðurinn minn og starfsfélagar liggja undir ámæli.“
Ragnar bendir á að María sé stjórnandi en kannski ekki sú gerð stjórnanda sem hann átti við í pistlinum og biður hann hana afsökunar á því. „Það var þó viðbúið að stjórnendur bregðist við með einhverjum hætti og get ég tekið undir orð Maríu að túlka mætti orð forstjórans á þá vegu sem hún lýsir. Og vert að taka fram að formaður VR er ekki hafin yfir gagnrýni frekar en aðrir í þjóðfélaginu og vil ég nota tækifærið og hrósa henni fyrir góðan pistil þó ég sé ekki sammála öllu sem hún skrifar.“
Ragnar segir einnig í pistlinum að alveg sama hversu staðan er slæm þá megum við ekki beygja okkur undir hæl alþjóðavæðingarinnar. „Hún verður að verða á forsendum vinnandi fólks. Endurreisnin verður að vera á forsendum okkar. Í kreppum eigum við að hlúa að okkar veikustu bræðrum og systrum, setja súrefnisgrímuna á fólkið og svo fyrirtækin.“
Pistla þeirra Ragnars og Maríu má sjá hér að neðan.
Í tilefni af pistli sem María Stefánsdóttir, sölustjóri Icelandair, skrifar og lýsir ömurlegu viðhorfi mínu í garð...
Posted by Ragnar Þór Ingólfsson on Þriðjudagur, 12. maí 2020
Þetta eru undarlegir tímar fyrir okkur sem störfum hjá Icelandair. Mörg okkar leggja nótt við dag til að bjarga félaginu...
Posted by Maria Stefansdottir on Mánudagur, 11. maí 2020